Skráning Actavis með vorinu 14. desember 2004 00:01
Mikill áhugi var hjá breskum fjárfestum á nokkrum af leiðandi fyrirtækjum í Kauphöll Íslands. Kauphöllin stóð fyrir kynningu á íslenskum fyrirtækjum í London. Augu fjárfesta beindust að Actavis, enda fyrirhugað að félagið verði skráð í kauphöllina í London á næsta ári. Slíkt hefur þó ekki verið tilkynnt í Bretlandi, en líklegt að breskir fjárfestar hafi nasaþef af fyrirætlunum félagsins. Breskir fjárfestar voru einnig áhugasamir um að kynna sér önnur fyrirtæki sem kynntu starfsemi sína. Auk Actavis kynntu Burðarás, Flugleiðir, KB banki, Íslandsbanki, Landsbankinn og Marel. Bakkavör hætti við vegna yfirtökuviðræðna á Geest. Auk fjárfsesta mættu viðskiptablaðamenn helstu fjölmiðla á kynningunna og fengu innsýn í starfsemi íslenskur fyrirtækjanna. Halldór Kristmannsson, forstöðumaður innri og ytri samskipta,hjá Actavis, segir að bresku fjárfestarnir hafi sýnt félaginu mikinn áhuga. "Það mættu margir í fundarherbergi Actavis og það var gerður mjög góður rómur að kynningunni," segir Halldór. Hann segir að ekki liggi fyrir neinar dagsetningar um fyrirhugaða skráningu Actavis í erlendri kauphöll. "Formleg kynning á fyrirtækinu mun hefjast þegar liggur fyrir hvenær stefnt er að skráningu félagsins." Róbert Wessman, forstjóri Actavis segir þessa kynningu mjög gott framtak hjá Kauphöll Íslands og búast megi við því að fyrirtækið verði með fleiri kynningar á starfseminni á næstunni. "Saga Actavis breiðist hratt út og við finnum aukinn áhuga með hverjum deginum sem líður,“ segir Róbert. Hann segir ánægjulegt að taka þátt í slíkri kynningu með íslenskum útrásarfyrirtækjum. Actavis frestaði skráningu sinni á erlendan markað fram yfir næstu áramót. Þótt ekki liggi fyrir endanleg ákvörðun um hvenær félagið verði skráð á markað er búist við því að það verði á fyrri hluta ársins. Við skráningu er lögð fram ítarleg skráningarlýsing sem lýtur að öllum helstu þáttum í rekstri félagsins. Líklegt er að þá muni liggja fyrir uppgjör fyrstu mánaða næsta árs. Seinni hluti vetrar eða snemma næsta vor er því líklegasti tíminn fyrir skráningu félagsins í kauphöllinni í London. Formleg kynning hefst líklega um það bil tveimur mánuðum áður en skráning er fyrirhuguð, en búast má við að umfjöllun í Bretlandi fari stigvaxandi á næstunni. "Við finnum fyrir miklum áhuga á Actavis og íslenskum fyrirtækjum," segir Halldór. Hann segir að fyrirtækið finni fyrir því að umfjöllun um viðskipti Íslendinga í London skili sér í vaxandi áhuga á Actavis.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira