Íbúðalánasjóður kyndir undir 8. desember 2004 00:01
Helsti veikleiki íslenskrar efnahagsstjórnar er að laun hjá hinu opinbera hafa hækkað langt umfram það sem almennur vinnumarkaður hefur tök á að standa undir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun stjórnar Samtaka atvinnulífsins. Stjórn samtakanna lýsir áhyggjum af verðbólgu og gengi krónunnar. "Þenslan í dag og þensluhættan framundan verður ekki skrifuð á einstaka þætti. Spennan framundan er vegna umframeftirspurnar á öllum sviðum." Ari segir að launaþróunin eigi sinn þátt, en laun hjá hinu opinbera hafa hækkað um ríflega þrettán prósent frá árinu 2000 meðan laun á almennum vinnumarkaði hafa hækkað um tíu prósent. Samtök atvinnulífsins segja síðustu hækkun hafa leitt til fimm prósenta styrkingar krónunnar á nokkrum dögum. Það jafngildi fimmtán milljarða tekjulækkun útflutningsgreina á ársgrundvelli. Rekstrarskilyrði fyrirtækja í alþjóðlegri samkeppni hafi versnað til muna. Samtökin telja að aðhald ríkisins sé ekki nægjanlegt til þess að draga úr þenslunni. Ari segir spennu efnahagslífsins verða meiri en árin 1999 og 2000 á sama tíma og aðhald ríkisfjármála verði hlutfallslega minna. Brýnt sé því að markmið fjárlaga náist í það minnsta og það gerist ekki nema að aðhaldsaðgerðum verði framfylgt og launastefna ríkisins verði innan þess kostnaðarramma sem samningar á almennum vinnumarkaði hafi markað. Samtök atvinnulífsins segja að á sama tíma og þetta ástand blasi við sé ríkið í skefjalausri samkeppni á lánamarkaði með starfsemi Íbúðalánasjóðs sem hvorki greiði tekjuskatt né ábyrgðargjald til ríkisins. "Það er óskiljanlegt að á sama tíma skuli sjóður í eigu ríkisins vera með ný útspil sem kynda undir verðbólgunni."
Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira