Viðskipti innlent

Gengið sterkt

Gengi íslensku krónunnar hefur ekki verið sterkara síðan í lok ársins 2000. Gengisvísitala krónunnar var 118 við lokun markaða í gær. Þetta er lægsta gildið frá því 6. nóvember árið 2000. Eftir því sem gengisvísitalan er lægri þeim mun ódýrara er að kaupa erlenda mynt í íslenskum krónum. Lágt gildi hennar gefur því til kynna hátt verðgildi krónunnar. Bandaríkjadalur heldur einnig áfram að falla í verði, bæði gagnvart evru og íslensku krónunni. Dalurinn var í gærmorgun skráður á 64,98 krónur en það er lægsta gildi hans frá því 14. ágúst 1995. Á gjaldeyrismörkuðum féll Bandaríkjadalur lítillega gangvart evru og fást nú 1,33 evrur fyrir hvern Bandaríkjadal.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×