Viðskipti innlent

Starfsmenn sáttir

Starfsmenn verslunarkeðjunnar Magasin du Nord í Danmörku tóku tíðindum um eigendaskipti vel ef marka má frétt í danska dagblaðinu Jyllands Posten. Þar er haft eftir talsmanni starfsmanna að þeir séu ánægðir að fjárfestar með mikla reynslul í smásölu hafi eignast fyrirtækið og vona að reksturinn muni batna með tilkomu nýrra eigenda. Baugur, Straumur fjárfestingarbanki og B2B Holdings, sem öll eru íslensk félög, hafa eignast tæp sjötíu prósent í verslunarkeðjunni sem er ein sú rótgrónasta á Norðurlöndum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×