SH kaupir í Bretlandi 4. nóvember 2004 00:01
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, SH, hefur keypt breskt félag, Cavaghan & Gray Seafood, sem framleiðir kældar sjávarafurðir fyrir breskar smásöluverslanir. Kaupverðið er 1,6 milljarðar króna. Með kaupunum eykst framleiðsla SH á kældum matvörum á breskum markaði til muna. "Þetta er þriðjungsaukning á okkar framleiðslu á þessum markaði," segir Gunnar Svavarsson, forstjóri SH. Gunnar segir fyrirtækið framleiða vörur sem smellpassi við framleiðslu SH. Cavaghan & Gray Seafood hefur selt vörur sínar að stærstum hluta til Marks & Spencer. Gunnar segir að Marks & Spencer sé næststærsti viðskiptavinur SH á Bretlandseyjum og kaupin séu með stuðningi Marks & Spencer. "Þetta er liður í vilja smásölukeðja til að fækka birgjum og vinna náið með þeim." Framleiðsluvörur breska fyrirtækisins eru brauðaður fiskur, lax, flatfiskur, bökur og þægindavörur tilbúnar til eldunar eða hitunar. Gunnar segir að vænst sé verulegrar hagræðingar af kaupunum. Kældar matvörur skila betri framlegð til fyrirtækja en frystar og hafa íslensk fyrirtæki beint sjónum sínum í auknum mæli að þeim markaði. Gunnar segir Bretland þróaðasta markaðinn á þessu sviði og því ekki að undra að SH leggi áherslu þann markað.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira