Níundi lækkunardagurinn 1. nóvember 2004 00:01
Hlutabréfamarkaður hélt áfram að lækka í gær níunda daginn í röð. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,71 prósent í gær. Leita þarf aftur til ársins 2001 eitt til að finna samfellda lækkun í níu daga. Þá lækkaði vísitalan stöðugt dagana 22. október til 1. nóvember sem eru sömu dagsetningar og í níu daga lækkun nú. Lækkunin þá var mun minni eða 2,5 prósent. Lækkunin í gær var minni en dagana í síðustu viku og viðskiptin minni. Atli B. Guðmundsson, sérfræðingur Greiningar Íslandsbanka segir það benda til þess að meiri ró sé yfir markaðnum. Verðmat greiningardeilda bankanna hefur verið talsvert lægra en verð félaga á markaði. Eftir lækkanir nú er verð nokkurra hlutafélaga komið nær verðmati greiningardeilda bankanna. "Verðmat miðar við mat á horfum fyrir núverandi rekstur," segir Atli. Greiningardeildir taka ekki inn í mat sitt væntingar um útrás eða kaup á öðrum fyrirtækjum. Atli segir að úrvalsvísitalan sé nú á svipuðum slóðum og hún var um miðjan ágúst. "Þetta er ekki meiri lækkun en það." Verð sem er nær greiningu á fyrirtækjum og minni velta geti bent til þess að lækkunin sé að stöðvast. "Markaði hættir til að bregðast of hart við í báðar áttir." Hugsanlega sé komið nóg, en hann geti lækkað meira. "Að þeim punkti að öllum finnist þetta komið út í tóma vitleysu eða niður fyrir verðmatsgengi." Hann segir að líklegt sé að enn um sinn muni reyna á verð félaga á markaði. "Vonandi er mesta lækkunin að baki," segir Atli. Síðustu vikuna hafa fjárfestar selt hlutabréf og sérfræðingar segja hækkun markaðar á ný ráðast af því hvort þeir fjármunir leiti aftur inn á markaðinn þegar fjárfestar telja botninum náð.
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Sjá meira