Ísland í áttunda sæti 13. október 2004 00:01
Ísland er í áttunda sæti á lista yfir 104 þjóðir þegar hagvaxtarlíkur á komandi árum eru metnar. Niðurstöður í alþjóðlegri rannsókn World Economic Forum voru kynntar í gær og þar kemur fram að Ísland fellur um tvö sæti. Í fyrra var Ísland í áttunda sæti. Finnland er efst á blaði eins og í fyrra og Bandaríkin í öðru sæti. Hin Norðurlöndin koma einnig vel út. Svíþjóð er í þriðja sæti, Danmörk í fimmta og Noregur í sjötta. Árið 1997 var Ísland í 38. sæti á listanum og segir Hallgrímur Jónasson, forstjóri Iðntæknistofnunar, að vera megi að ákveðið jafnvægi sé komið á eftir hraðstígar framfarir undanfarin ár. Hann segir ekki hægt að draga víðtækar ályktanir af því að Ísland falli niður um tvö sæti. "Það er í sjálfu sér hverfandi eða lítill munur þar á," segir Hallgrímur. Ísland fær 5,44 stig en Sviss, sem er í áttunda sæti, fær 5,49. Finnland er nokkuð öruggt í efsta sætinu með 5,95 stig. "Þessi vísitala á að gefa til kynna hagvaxtarhorfur næstu fimm til átta árin. Hún er sett saman úr tæknivísitölum annars vegar og hins vegar úr gæðum opinberra stofnana og efnahagskerfisins. Við komum langbest út varðandi gæði opinberra stofnana og höfum ákveðna yfirburði þar. Við komum sömuleiðis mjög vel út í samanburði á samskiptamálum. Þar er tekið tillit til fjölda internettenginga og þess háttar," segir Hallgrímur. Hann segir að Ísland komi hins vegar ekki vel út varðandi nýsköpun og frammistaða í þeim efnum dragi einkunnina niður. Að hans mati kann stærð landsins að ráða þar einhverju þar sem aðgangur að sérhæfðri rannsóknarþjónustu sé minni hér en í stærri samkeppnislöndum. "Þetta er svið sem við eigum að bæta og það eru skilaboðin sem við fáum," segir Hallgrímur.
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Sjá meira