Æfir vegna yfirtöku 8. október 2004 00:01
Stuðningsmenn knattspyrnuliðsins Manchester United eru margir hverjir æfir vegna hugsanlegrar yfirtöku bandaríska athafnamannsins Malcolm Glazer á félaginu. Manchester United er efnaðasta knattspyrnufélag í heimi og jafnframt eitt þekktasta vörumerki heims. Glazer á nú rúmlega 19 prósenta hlut í félaginu, en United er metið á tæpar 700 milljónir sterlingspunda, eða um 90 milljarða íslenskra króna og er nánast skuldlaust. Talið er líklegt að ef af kaupunum verður muni Glazer kaupa hlutinn á 2,70 til 3 sterlingspund, en í gær var hluturinn skráður á 2,66 sterlingspund. Manchester United er skráð fyrirtæki í kauphöllinni í London. Stofnað hefur verið félag áhangenda gegn sölu United, MEC, sem hefur hótað að efna til borgarastyrjaldar verði af viðskiptunum. Fjörutíu liðsmenn MEC ruddust inn á völlinn í leik United og Birmingham City í fyrrakvöld klæddir lambúshettum og héldu uppi borða sem á var letrað: "Ekki til sölu". Þeir eru taldir bera ábyrgð á því að rauðri málningu var skvett á bíl eins stjórnarmanna United á mánudag, en hann hafði selt Glazer milljón hlutabréf í félaginu nýverið. Miklar vangaveltur hafa verið um kaupin í breskum fjölmiðlum undanfarna daga en það fékkst ekki staðfest fyrr en í gær að í gangi væru viðræður milli Glazer og stærstu hluthafa í United, þar á meðal tveggja Íra, Magnier og McManus, sem eiga 28,9 prósenta hlut. Talsmaður Glazer sagði í viðtali við Fréttablaðið að líklegt væri að viðræðurnar stæðu yfir í allt að tvær vikur í viðbót. "Lykillinn að því að kaupin gangi í gegn er sá að Glazer vinni traust aðdáenda United. Ef Glazer mun koma með tilboð verður tryggt að áhangendur sjái sér hag í því til langsframa. Eitt af því sem Glazer ætlar sér að gera, verði af yfirtökunni, er að styrkja bönd félagsins við áhangendur," sagði talsmaðurinn. Að sögn talsmannsins eiga aðdáendur félagsins 18 prósent hlutabréfa. "Það er fólk sem mætir á hvern einasta leik liðsins. Það verður að trúa því að liðið muni styrkjast við yfirtöku Glazers," sagði hann. Stuðningsmenn liðsins hafa lýst yfir óánægju sinni með fyrirætlan Glazers og telja hann ekki nægilega sterkan fjárhagslegan bakhjarl fyrir félagið. Ólíkt eiganda Chelsea, Roman Abramovich, muni Glazer ekki hafa efni á því að dæla fjármunum til uppbyggingar liðsins, heldur séu markmið hans einungis að hagnast á kaupunum.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira