Tvöfaldar framleiðslugetu 6. október 2004 00:01
Lýsi reisir nú myndarlegt verksmiðjuhúsnæði við Fiskislóð á Örfirisey. Þeir sem átt hafa leið þar um hafa rekið upp stór augu yfir því óvenjulega vinnulagi sem er á byggingunni. Þar er búið að setja upp geymslutanka fyrir lýsi innan í grind hússins. Með nýju verksmiðjunni tvöfaldast framleiðslugeta fyrirtækisins. Að sögn Katrínar Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Lýsis, er mikið hagræði fólgið í því að koma stærstu tönkunum fyrir í húsinu áður en útveggir og þak eru sett upp. "Þetta gerir það að verkum að menn komast betur að og þetta hentar vel fyrir þá tanka sem eiga að vera innandayra að setja þetta upp um leið og grindin er reist," segir hún. Gert er ráð fyrir að nýja verksmiðja Lýsis verði prufukeyrð í mars en þá tekur nokkurn tíma að fínstilla tækin áður en framleiðsla fer á fullt. Í nýjum höfuðstöðvum Lýsis verður hreinsunarstöð, rannsóknarstofur, skrifstofur og aðstaða til pökkunar á vörunni. Geymslurými nemur þrjú þúsund tonnum. Stóru tankarnir sem komið hefur verið fyrir inni í nýju verksmiðjunni taka áttatíu þúsund tonn en utan dyra verða nokkrir 115 þúsund tonna tankar. "Við finnum að við erum að koma inn á mjög góðum tíma með þessa aukningu. Það hefur verið mikil umfjöllun um ágæti vörunnar og markaðurinn okkar hefur stækkað jafnt og þétt," segir Katrín. Ágæti Omega-3 fitusýru hefur ítrekað verið sannað í rannsóknum og það er á grundvelli þess sem Lýsi hyggur á aukna landvinninga. Um 85 prósent af framleiðslu Lýsis er flutt út og gerir Katrín ráð fyrir að það hlutfall haldi áfram að hækka þótt einnig hafi orðið vart aukinnar eftirspurnar á íslenskum markaði.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira