Lífeyririnn og lýðræðið 5. október 2004 00:01
Verðtrygging skuldbindinga lífeyrissjóðanna hefur skapað misræmi, þar sem kaupmáttur launa hefur vaxið töluvert umfram verðbólgu. Greiðslur til lífeyrisþega fylgja því ekki launaþróun. Hækkandi lífaldur dregur úr lífskjörum sjóðfélaga og hugleiða ber að lækka greiðslur með hækkandi aldri, þannig að þeir sem komnir eru yfir nírætt fái lægri greiðslur en þeir sem eru sjötugir. Þetta var meðal þess sem kom fram á fundi Lífeyrissjóðs verkfræðinga um lífeyrismál í tilefni hálfrar aldar afmælis sjóðsins. Frummælendur á fundinum voru Gunnar Páll Pálsson, varaformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, Sigurjón Árnason, bankastjóri Landsbankans, og Pétur Blöndal, alþingismaður og tryggingastærðfræðingur. Þrátt fyrir að ýmis vandamál séu óleyst varðandi lífeyrissjóði voru frummælendur á því að stofnun söfnunarlífeyrissjóða á sínum tíma hefði verið mikið gæfuspor. Lífeyrissjóður verkfræðinga beitir þeirri aðferð að réttindi eru hærri ef menn greiða ungir í lífeyrissjóð. Vextir og tímalengd eru höfuðbreytur í langtímaávöxtun, og fjármunir sem fá að liggja lengi í sjóði skila meiri ávöxtun, en þeir sem ávaxtast í skemmri tíma. Gunnar Páll Pálsson sagði að erfitt væri að breyta úr kerfi þar sem allir eru jafnsettir óháð á hvaða aldri er greitt í sjóðinn yfir í það kerfi sem verkfræðingarnir nota. Hann sagði breytingu milli kerfa munu bitna harðast á þeim sem nú eru á miðjum aldri. Sigurjón Árnason tók undir með Gunnari Páli um að erfitt væri að breyta um kerfi. Hann taldi einnig að fækka þyrfti sjóðum til að ná meiri stærðarhagkvæmni. Pétur Blöndal fagnaði sérstaklega lýðræðinu í Lífeyrissjóði verkfræðinga, þar sem stjórn er kjörin árlega af sjóðfélögum. Skiptar skoðanir eru um það í lífeyrissjóðunum um þá tilhögun. Gunnar Páll sagði að sjóðirnir væru afrakstur kjarasamninga og sjónarmið atvinnurekenda hefðu verið þau að reikningurinn af röngum ákvörðunum stjórna lífeyrissjóða yrði á endanum sendur atvinnulífinu. Hann benti einnig á praktísk vandamál við framkvæmd lýðræðis í stórum sjóðum eins og Lífeyrissjóði verslunarmanna sem teldi tugþúsundir félagsmanna. Sigurður Áss Grétarsson, formaður Lífeyrissjóðs verkfræðinga, taldi hins vegar að engin ástæða væri til að ætla að lýðræðið ætti ekki við í öðrum lífeyrissjóðum eins og það gerði hjá verkfræðingum.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira