Dregin af dönskum skandal 27. september 2004 00:01
Tillaga viðskiptaráðuneytis um að heimildir hlutafélaga til að hafa starfandi stjórnarformunn verði þrengdar gengur þvert á þróun annars staðar um stjórnarhætti hlutafélaga að mati Lögmanna Mörkinni sem unnu skýrslu um þessar tillögur fyrir KB banka. Lögmennirnir segja slíka reglu einungis að finna í Danmörku og Þýskalandi af þeim sjö löndum sem skoðuð voru. Í Noregi, Svíþjóð, Bretlandi, Frakklandi og Sviss sé slík löggjöf ekki til staðar. Lögmönnunum Gunnari Jónssyni, Gesti Jónssyni, Herði Felix Harðarsyni og Ragnari Hall var falið að fara yfir skýrslu nefndar viðskiptaráðherra um íslenskt viðskiptaumhverfi og skoða þá þætti sem lúta að því sem kallað hefur verið starfandi stjórnarformenn. "Almennt á ekki að leiða í lög reglur nema að menn séu búnir að mynda sér skoðun um að það sé nauðsynlegt að ná einhverjum markmiðum," segir Gunnar Jónsson, aðalhöfundur skýrslunnar. Hann segir að fyrst verði að meta hvort vandamál sé uppi og síðan að bregðast við komist menn að þeirri niðurstöðu. "Þetta er úr takti við okkar lagahefð sem er sú að við búum til ramma og reynum sem allra minnst að leiða í lög einhverjar reglur sem varða sértilvik." Gunnar segir að geri menn mikið af því þá leiði af því hætta á því að sú ályktun sé dregin að það sem ekki sé skilgreint í sértilvikum sé heimilt með vitund og vilja löggjafans. "Þá er verið að afmá línuna sem ramminn dregur." Lögmennirnir segja að tillagan eigi sér fyrirmynd í dönskum lögum. "Ákvæði dönsku laganna sker sig úr fyrir það hversu takmarkandi það er. Ákvæðið kom til sem viðbrögð löggjafans við hneykslismáli í tengslum við tiltekið gjaldþrot og telst því tæpast heppileg fyrirmynd," segir í skýrslu lögmannanna. Gunnar segir að staða stjórnarformanns KB banka stangist ekki á við regluna samkvæmt tillögunni. "Engu að síður er hætta, þótt viðskiptaráðherra hafi sagt að svo sé ekki, á að lögin verði síðar túlkuð með öðrum hætti. Verslunarráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöll Íslands hafa gefið út leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Lögmennirnir telja að tiilögur nefndarinnar drepi niður frumkvæði þessara aðila. Almennt sé slíkum reglum ekki skipað með lögum heldur reglum sem settar eru af kauphöll eða markaðsaðilum. "Til hvers að setja lög gegn því sem hefur gengið vel til þessa?" segir Gunnar.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira