Veltan jöfn landsframleiðslu 17. september 2004 00:01
Baugur hefur stigið fyrstu skrefin til yfirtöku Big Food Group. Kaupverð með skuldum er 94 milljarðar. Viðræður eru á frumstigi. Samanlagt yrði velta fyrirtækja undir stjórn Baugs jöfn landsframleiðslu eða um 800 milljarðar ef kaupin ganga eftir. slögg: megin:Baugur hefur farið fram á það við stjórn Big Food Group að fá að komast í bækur félagsins vegna áhuga á að gera yfirtökutilboð í félagið. Stjórn Big Food samþykkti það í gærað heimila Baugi aðgang að bókhaldi félagsins. Fjárfestingin með skuldum og kostnaði nemur 94 milljörðum króna, en yfirtökugengið er 110 pens á hlut. Baugur á 22 prósent í Big Food, en fyrstu fimmtán prósentin voru keypt á genginu 40 pens. Fjárfestingin er samkvæmt þessu níu milljörðum hærri en fjárfestingin í Kárahnjúkavirkjun. Talsmenn Baugs hafa ekkert viljað láta uppi um hverjir koma að fjármögnun, en ljóst er að stjórn Big Food tekur ekki slíka beiðni til greina nema að fyrir liggi bréf frá bönkum um að fjármögnun sé tryggð. KB banki mun koma að fjármögnun kaupa, en meirihluti fjármögnunar verður í höndum erlendra banka. Verði af þessari fjárfestingu, er hún sú stærsta sem íslenskt fyrirtæki hefur ráðist í. KB banki átti fyrra met með kaupum á danska FIH bankanum fyrir 84 milljarða króna. Yfirtökuferli Baugs er á byrjunarstigi og óvíst um niðurstöðuna. Stjórn Baugs hefur ekki tekið ákvörðun um hvort ráðist verði í yfirtöku, en sú ákvörðun verður tekin eftir áreiðanleikakönnun á Big Food og að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Velta Big Food er um 660 milljarðar króna. Fyrir velta félög sem Baugur ræður yfir 140 milljörðum. Samanlögð velta yrði því um 800 milljarðar sem er nánast sama tala og landsframleiðsla Íslendinga. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði er ríflega átján milljarðar króna. Fasteignir Big Food Group eru metnar á 23 milljarða króna. Líklegt er að Baugur hyggi á sölu fasteigna til að létta á efnahagsreikningnum. Big Food rekur 758 smásöluverslanir undir merkjum Iceland, en auk þess 174 "Gripið og greitt" verslanir fyrir veitingahús og verslanir. Aðfangaþáttur rekstrarins mun vera það sem stjórnendur Baugs sjá mikla möguleika í. Hjá Big Food starfa 32 þúsund manns. Gengi Bréfa Big Food hækkaði í gær um rúm ellefu prósent og endaði í 103 pensum á hlut.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira