Ekkert varð af fundi 7. september 2004 00:01
Ekkert varð af fyrirhuguðum hluthafafundi hjá Opnum kerfum í gær. Kögun, stærsti hluthafinn, fór fram á fundinn fyrir tæpum mánuði síðan en féll frá kröfunni í gær. Í tilkynningu frá Kögun segir að félagið telji að flokkadrættir í hluthafahópi Opinna kerfa séu ekki til hagsbóta. Útlit var fyrir að barátta yrði milli Kögunar og Frosta Bergssonar, stjórnarformanns og stofnanda Opinna kerfa, um meirihluta í stjórninni. Fulltrúar fylkinganna tveggja munu reyna að jafna ágreining sinn í stað þess að efna til kosningar. Kögun á 35,77 prósent í félaginu og Frosti tæplega sautján prósent. Gunnlaugur M. Sigmundsson, forstjóri Kögunar, segist telja að tillaga hans hefði náð fram að ganga en ljóst hafi verið að erfitt væri að knýja fram breytingar í félaginu ef mikil fyrirstaða yrði innan stjórnarinnar. Því hafi Kögun ákveðið að draga tillögu sína til baka. "Það væri því miklu betra að reyna að ná saman um stjórn heldur en að reyna að ná saman inni í stjórn eftir að það væri búið að fara í gegnum slíka kosningu," segir hann. Hann telur að hugsanlega komi til kosningar um stefnu í félaginu síðar en að með þessari aðgerð hafi Kögun viljað skapa svigrúm til áframhaldandi viðræðna. Frosti Bergsson segir ljóst að ef farið hefði verið út í kosningu í stjórn hefði hún orðið mjög tvísýn. "Ég vona bara að menn nái samkomulagi sem taki mið af hagsmunum allra hluthafa og starfsmann og viðskiptavina félagsins," segir Frosti.
Mest lesið Stefán nýr útvarpsstjóri Sýnar Viðskipti innlent Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Viðskipti innlent Dæmdur skattsvikari beri enga ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins Viðskipti innlent Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Viðskipti innlent Kastrup opnar á ný eftir karp við heilbrigðiseftirlitið Viðskipti innlent Að takast á við sjokkerandi breytingar í vinnunni Atvinnulíf Stólaleikur í Svörtuloftum Viðskipti innlent Sigríður Theódóra til Aton Viðskipti innlent Enn færri komast að í HR en vilja Viðskipti innlent Loka fyrir færslur á Workplace í haust Viðskipti erlent Fleiri fréttir Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Stólaleikur í Svörtuloftum Jón stýrir markaðsmálunum hjá N1 Stefán nýr útvarpsstjóri Sýnar Kastrup opnar á ný eftir karp við heilbrigðiseftirlitið Kjarasamningar undirritaðir fyrir nær allt launafólk Enn færri komast að í HR en vilja Sigríður Theódóra til Aton Dæmdur skattsvikari beri enga ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Magnús Þór leggur Samtökum iðnaðarins ráð Búinn að afnema regluverkið sem tafði fyrir opnun Kastrup Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Íris nýr sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Starbucks frestar opnun fram í lok sumars SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Embla Medical hlaut útflutningsverðlaun forsetans og Ragnar Kjartans heiðraður Aukinn samdráttur á flugi til Íslands með breyttu Play Skattur á atvinnuhúsnæði hækkað um helming á áratug Tekur við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka Hlutabréf Play ruku upp við opnun markaða „Erum bara að hætta þeirri starfsemi sem hefur gengið illa“ Áttatíu milljóna gjaldþrot Heimabakarís á Húsavík Vilja taka yfir Play Boða komu HBO Max til landsins á ný Pála ráðin kynningarfulltrúi BHM Sjá meira