Óvíst um áhrif á verð Símans 7. september 2004 00:01
Sérfræðingar hjá greiningardeildum bankanna telja of snemmt að segja til um hvaða áhrif kaupin á hluta í Skjá einum hafa á verð félagsins þegar það verður selt. Edda Rós Karlsdóttir, hjá Landsbankanum, segir að við þessar aðstæður sé tvennt sem kemur til hækkunar á fyrirtæki sem kaupir. Annars vegar geti verið að kaupsamningar hafi verið einkar hagstæðir og hins vegar geti verið að nýir eigendur telji sig geta skapað meiri verðmæti úr fyrirtækinu heldur en þeir sem seldu. Hún telur að í þessu tilfelli sé um síðara tilvikið að ræða. "Hugsunin er væntanlega sú að fjölga notendum breiðbandsins. Ef það tekst er líklegt að þetta skili einhverju til fyrirtækisins," segir Edda Rós. Þórður Pálsson hjá KB banka getur heldur ekki sagt ákveðið til um það hvort kaupin auki verðmæti Símans. ""Það er ekki augljóst að kaupin komi til með að hækka verðmæti fyrirtækisins. Það kemur væntanlega í ljós en á þessari stundu hef ég ekki nægar upplýsingar til þess að geta metið það," segir hann. Atli B. Guðmundsson hjá Íslandsbanka segist hins vegar telja víst að kaupin hafi lítil áhrif á verðmæti Símans. "Kjarni málsins er sá að Skjár einn er mjög lítið fyrirtæki í samanburði við Símann. Ég get því ekki séð að þessi kaup muni hafa veruleg áhrif á verðlagningu félagsins þegar það verður selt," segir Atli.
Mest lesið Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira