Viðskipti innlent

Meira drukkið í blíðunni

Sala á áfengi jókst um sautján prósent, á föstu verðlagi, á milli júlí 2003 og júlí 2004. Almennt var sala á dagvörum tæplega sjö prósentum hærri en í fyrra. Í fréttatilkynningu frá Samtökum verslunar og þjónustu segir Brynjar Steinarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samkaupa, að hugsanlega hafi smásala aukist vegna veðurblíðunnar. Hann segir að svo virðist sem fólk leyfi sér meiri munað og kaupi dýrari mat þegar veðrið sé gott.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×