Kögun kaupir Opin kerfi 15. október 2004 00:01
Kögun hefur eignast ríflega tvo þriðju í Opnum kerfum og keypt út Frosta Bergsson, stofnanda og stjórnarformann félagsins. Átök hafa verið um eignarhald á félaginu undanfarna mánuði eftir að Kögun keypti 35,77 prósent í félaginu um miðjan ágúst. Frosti Bergsson kveðst sáttur við þessi viðskipti og segir hluthafa í Opnum kerfum fá gott verð fyrir hluti sína. "Þetta sýnir að menn eru skotnir í félaginu. Staðan á markaðnum í dag er þannig að félögum í Kauphöllinni er að fækka og félögin sem eru skráð eru háð breytingum og sviptingum," segir Frosti. Hann mun hætta sem starfandi stjórnarformaður Opinna kerfa en útilokar ekki að hann muni áfram starfa í upplýsingatæknigeiranum. Hvað varðar framtíð Opinna kerfa telur Frosti að þar vegi þyngst að hjá félaginu starfi góður hópur fólks. "Markaðsverðmæti félagsins er á níunda milljarð króna. Ég held að menn muni reyna mjög að passa upp á verðmætið sem er í félaginu og það er að stórum hluta fólkið sem þar starfar," segir hann. Viðskiptin í gær fóru fram á genginu 26,8 sem er um fimm prósentum hærra en lokagengi bréfanna var á fimmtudag. Ásamt Frosta seldi Straumur rúm fimm prósent, Íslandsbanki tæp tuttugu prósent.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira