Flottasti bókaflokkur á Íslandi Egill Helgason skrifar 17. október 2004 00:01
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins hafa verið sívirkur gleði- og fróðleiksgjafi allar götur síðan maður var að stauta sig fram úr Skáldskaparlist Aristótelesar og Frelsinu eftir John Stuart Mill á menntaskólaárum. Þessar bækur lifa í minningunni, þótt kannski hafi rit eins og Iðnríki vorra daga eftir Galbraith og Valdstjórn og vísindi eftir C.P. Snow ekki elst sérlega vel. Allar þessar bækur komu út á fyrstu árum lærdómsritaútgáfunnar sem hefur staðið síðan í kringum 1970. Nú eru ritin orðin 57 talsins - síðast bættust við tvær bækur, Draugasaga eftir rómverska leikskáldið Plátus og Orðræða um frumspeki eftir heimspekinginn Leibniz. Þetta er allt mjög menningarlegt, vandað og metnaðarfullt. Bækurnar eru svo fallega hannaðar að þær eru á algjörum heimsmælikvarða - ég held að það sé enginn vafi á að þetta er flottasti bókaflokkur sem hefur komið út á Íslandi. Bækurnar eru smáar í brotinu, letrið sæmilega stórt og leturflöturinn er svo lítill að það er hægt að lesa þær nokkuð fyrirhafnarlítið - þó efnið sjálft kunni að vera skelfing snúið. Annars er með ólíkindum hversu bókaútgefendur hér eru upp til hópa illa að sér um bókagerð. Það er gamall vísdómur að bækur eiga helst ekki að vera með leturflöt sem er stærri en 11 sentímetrar þversum. Þá er hægt að lesa textann á síðunni í einu augnakasti, en ef leturflöturinn er stærri þurfa augun að hafa meira fyrir lestrinum og þreytast fyrr. Prófið bara sjálf. Sigurður Líndal sagði einhvern tíma við mig að Bókmenntafélagið mældi tilvist sína í öldum - og bókaútgáfa þess starfaði í þeim anda. Það er ekki miðað við næstu jól eða fermingavertíð. Margar bækurnar eru líka þess eðlis að maður er eiginlega aldrei búinn að klára þær; það getur raunar verið ansi slæmt fyrir þá sem óttast það sem flókið er (sbr. Lesbók Mbl, 16. október), allavega er ég búinn að vera að þrælast í Ugg og ótta eftir Kierkegaard í bráðum þrjú ár...
Brotasilfur Menning Silfur Egils Mest lesið Var orðið að spurningu um líf og dauða Lífið Aron Kristinn orðinn pabbi Lífið Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Gagnrýni Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Lífið Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Lífið samstarf Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Umboðsmaður Jenner lést af slysförum Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið Fleiri fréttir Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Er Stalín listgagnrýnandi í Hörpu núna? Wardruna í vanda – þegar dulúðin náði ekki flugi Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Messan sem var ekki tímamótaverk – en mig langaði samt til að gráta Sjá meira