Kaupin á FIH endanlega frágengin 29. september 2004 00:01
KB banki eignast danska bankann FIH í dag. Þar með eru orðin að veruleika stærstu fyrirtækjakaup Íslendinga frá upphafi. Sigurður Einarsson og hans fólk greiða 84 milljarða í dag og fá í staðinn afhent öll hlutabréf í danska bankanum. Seljandi er sænskur banki, Förenings Sparbanken. "Kaupin gjörbreyta bankanum eina ferðina enn," segir Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka. Hann segir að auk tvöföldunar á stærð KB banka verði Danmörk stærsta einstaka markaðssvæði bankans. "Þetta færir okkur einu skrefi nær því markmiði okkar að verða alvöru norrænn banki." KB banki aflaði 40 milljarða með hlutafjárútboði til kaupanna en greiðir afganginn með víkjandi lánum og eigin fé. Bankinn hefur auk þess gert samning við Deutche Bank um sölutryggingu 40 milljarða hlutafjár til viðbótar. Hlutafjár sem nýta má til frekari vaxtar. "Það er ljóst að þetta er engin endastöð en við förum varlega og tökum eitt skref í einu." KB banki hefur verið áberandi í stórum fyrirtækjaverkefnum og væntingar eru um að bankinn nýti viðskiptamannahóp FIH til slíkra verkefna sem jafnan gefa vel af sér. Sigurður segir að menn fari sér hægt í þeim efnum. "Við munum vinna í takti við núverandi stjórnendur bankans." Hann segir að ekki verði aðrar breytingar á stjórn bankans en þær að hann og Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka, komi inn í stjórnina. "Það rímar við stefnu okkar að vera heimabanki á hverjum stað. Danskur banki í Danmörku og sænskur í Svíþjóð." Sigurður segir að hagræðið komi svo með stærri einingu sem birtist í betri kjörum í fjármögnun starfseminnar. Eftir sameiningu verða eignir KB banka á bilinu 1.500 til 1.700 milljarðar íslenskra króna. Greiningardeild Íslandsbanka birti fyrir skemmstu verðmat á bankanum. Þar er gert ráð fyrir að hagnaður sameinaðs banka verði yfir átján milljarðar króna í ár.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira