Meiri bjartsýni 28. september 2004 00:01
Bjartsýni neytenda um horfur í efnahagslífinu eykst enn. Væntingavísitala Gallup hækkaði um níu stig á milli mánaða og hefur tekið snöggan kipp upp á við á síðustu mánuðum. Í Morgunkorni Íslandsbanka kemur fram að fólk sé bjartsýnna um almennar efnahagshorfur auk þess sem fleiri hyggja á fasteigna- og bílakaup. Í vor tók væntingavísitalan dýfu þegar "svartsýniskast" greip um sig meðal neytenda að mati greiningardeildar KB banka. KB banki gerir þó fyrirvara við túlkun vísitölunnar og segir að vísitalan hafi verið því marki brennd að sveiflast mikið. Væntingavísitalan er nú 12,3 stigum hærri en hún var fyrir einu ári. Nú stendur vísitalan í 119,3 stigum og hefur aðeins tvisvar farið hærra síðan mælingar hófust árið 2001. Þetta þýðir að fólk telur almennt að ástand efnahagsmála sé gott. Langtímavæntingar eru hins vegar áþekkar því sem þær voru á sama tíma í fyrra. Bjartsýni um efnahagshorfur eftir hálft ár er örlítið minni en hún var þá. Í Bandaríkjunum ríkir hins vegar þveröfug stemmning. Þar lækkaði sú vísitala sem mælir trú neytenda á efnahagshorfum. Þetta er annar mánuðurinn í röð sem þessi vísitala lækkar. Þar er talið að hægagangur í atvinnumálum dragi úr væntingum fólks.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira