Grunur um bókhaldssvik 24. nóvember 2004 00:01
Hlutabréf ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo, sem er aðalverktaki Landsvirkjunar við Kárahnjúka, féllu um 37,5 prósent í gær í kjölfar rannsóknar yfirvalda á meintum bókhaldsbrotum fyrirtækisins. Impregilo er sakað um að hafa rangfært 296 milljón evra lán, 26 milljarða króna, til dótturfélags síns Imprepar sem er í gjaldþrotameðferð. Rannsókn yfirvalda beinist einnig að rangri upplýsingagjöf til markaðar. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum færði Impregilo lánið til gjalda fyrir gjaldþrot Imprepar. Rannsóknin beinist að því hvort peningar hafi raunverulega farið á milli fyrirtækjanna eða hvort um bókhaldssvik sé að ræða. Imregilo er að stórum hluta í eigu Romiti-fjölskyldunnar í gegnum eignarhaldsfélag hennar, Gemini. Gemini er einnig skráð á markað og hafa bréf félagsins fallið um hátt í 20 prósent síðustu tvo daga. Ítalska dagblaðið Repubblica segir að þetta sé mikið áfall fyrir ítalskt viðskiptalíf og óttast að annað mál í líkingu við Parmalat-hneykslið sé í uppsiglingu. "Þetta hefur engin áhrif á starfsemi Impregilo hér á landi og snertir á engan hátt verkefni þeirra á Kárahnjúkum," segir Ómar R. Valdimarsson, upplýsingafulltrúi Impregilo hér á landi. Impregilo segir í yfirlýsingu að umfjöllun fjölmiðla af málinu hafi verið villandi. Rannsókn beinist einungis að örfáum færslum sem rannsakendur eigi eftir að fá staðfestar. Forsvarsmenn segjast munu leggja fram gögn til rannsóknaraðila sem sýni að allar yfirlýsingar um fjárhagslega stöðu fyrirtækisins hafi verið réttar og að viðskiptin við dótturfélagið Imprepar hafi verið með eðlilegum hætti. Samkvæmt heimildum úr herbúðum Impregilo eru aðstandendur fyrirtækisins afar undrandi á rannsókninni og geta ekki varist þeirri hugsun að annarleg sjónarmið ráði rannsókn yfirvalda.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira