Völdin eru eina hugsjón R-listans 24. nóvember 2004 00:01 Stjórnarhættir R-listans - Þorsteinn Magnússon laganemi Nýlega ákvað borgarstjórnarflokkur R-listans að hækka útsvar á skattgreiðendur í Reykjavík upp í hæstu leyfilegu mörk, í 13,03% úr 12,7%. Þá munu fasteignagjöld hækka úr 0,320% í 0,345%. Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar, hafði þetta um hækkanirnar að segja í sjónvarpsfréttum RÚV 13. nóv.: "Það sem við erum að hugsa um fyrst og fremst með þessum hækkunum núna er að eiga svigrúm til þess að mæta kjarasamningum á næstu mánuðum og misserum og sömuleiðis til að eiga svigrúm að einhverju leyti til að grynnka á skuldum borgarinnar." Það jákvæða við þessi ummæli er að forvígismenn R-listans eru loksins farnir að viðurkenna að skuldasöfnun borgarinnar sé vandamál. Það sorglega er hins vegar það að svona skuli vera komið fyrir fjárhag borgarinnar og að ekki hafi verið gripið í taumana. Talsmenn R-listans hafa gjarnan borið því við að staða borgarsjóðs sé nú ekki svo slæm. Staðreyndin er hins vegar sú að skuldirnar hafa verið færðar að miklu leyti frá borgarsjóði yfir á fyrirtæki borgarinnar til að hylja óráðsíuna. Skuldasöfnun er ekki eina vandamálið sem hrjáir R-listann. Allir hafa fylgst með vandræðaganginum í kringum afsögn Þórólfs Árnasonar og væntanleg borgarstjóraskipti. Það hryggilega, sem skinið hefur í gegnum ummæli borgarfulltrúa, og raunar einnig fráfarandi borgarstjóra, í því ferli er það hvaða hagsmuni þeir bera fyrst og fremst fyrir brjósti. Í fréttum RÚV klukkan 22 þann 9. nóvember hafði Árni Þór Sigurðsson m.a. þetta um málið að segja: "Eins og ég segi vil ég bara að við fáum tóm til að ræða þetta í okkar hópi hvað við teljum best fyrir Reykjavíkurlistann." Fleiri borgarfulltrúar gáfu svipuð svör við spurningum fréttamanna. Þar höfum við það. Þeir hagsmunir sem R-listamenn bera fyrst og fremst fyrir brjósti eru ekki hagsmunir Reykvíkinga - sem þeir þó hafa valist til að starfa fyrir, heldur þeirra eigin hagsmunir - hagsmunir R-listans. Það er framtíð R-listans en ekki framtíð Reykvíkinga sem þeim eru efst í huga. Svo virðist sem hugsjónir þeirra snúist fyrst og fremst um það að viðhalda eigin völdum en ekki um það að bæta samfélagið í borginni. Þannig klifaði hver borgarfulltrúinn á fætur öðrum á því á dögunum að við ákvörðun um brotthvarf Þórólfs Árnasonar og val á nýjum borgarstjóra hefðu hagsmunir R-listans fyrst og fremst verið hafðir að leiðarljósi. Þetta virðist mörgum þykja alveg eðlilegt. Hvað ætli fólk hefði sagt ef Davíð Oddsson hefði lýst því yfir þegar hann var borgarstóri að ákvarðanir hans stjórnuðust af því hvað best væri fyrir Sjálfstæðisflokkinn? Það þarf svo sem engan að undra að þeir sem að R-listanum standa séu uggandi um framtíð hans. Margoft hefur sýnt sig að samstarfið hangir á bláþræði. Hinn bági fjárhagur mun ekki bæta ástandið. Hvert munu R-listamenn sækja fé í næstu gæluverkefni, og til að axla skuldabyrðina nú þegar svigrúm til útsvarshækkana verður fullnýtt? Það skyldi þó ekki vera að þess sæi stað á orkureikningum borgarbúa eins og fordæmi eru fyrir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar