Kaupa tískukeðju með Landsbankanum 11. nóvember 2004 00:01
Verið er að leggja lokahönd á kaup Baugs á kvenfatakeðjunni MK One. MK One selur ódýran tískufatnað og hefur verið í örum vexti að undanförnu. Kaupverðið með skuldum er 55 milljónir punda eða sjö milljarðar króna. Verslun með ódýran tískufatnað hefur að undanförnu vaxið þrisvar sinnum hraðar en önnur fataverslun í Bretlandi. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans kom að ráðgjöf verkefnisins, fjármögnun þess og kaupir bankinn auk þess 36 prósenta hlut í fyrirtækinu. Baugur mun eiga helming hlutafjár og framtíðarstjórnendur félagsins munu einnig eignast hlut í félaginu. Síðustu tvö ár hefur sala MK One aukist um 22 prósent á ári og veltir á átjánda milljarð króna. Verslunarkeðjan rekur 176 verslanir í bretlandi og telja kaupendur mikil tækifæri í vexti félagsins í Bretlandi, auk þess sem litið er á Norðurlöndin sem framtíðarmarkað fyrir keðjuna. Hagnaður MK One fyrir fjármagnsliði og afskriftir er 1,8 milljarðar króna og greiða Baugur og Landsbankinn því tæplega fjórfalda framlegð þess fyrir fyrirtækið. Seljendur eru David Thompson og Elaine McPearson, en auk þess átti góðkunningi Baugs, Philip Green eigandi Arcadia, hlut í fyrirtækinu.
Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Sjá meira