Ágreiningur um rafmagnsverð 14. nóvember 2004 00:01
Upp úr viðræðum Landsvirkjunar og Norðuráls um orku til stækkaðs álvers á Grundartanga slitnaði vegna ágreinings um rafmagnsverð. Norðurál mun í staðinn ganga til samninga við Orkuveitu Reykjavíkur og verður viljayfirlýsing um það undirrituð næstkomandi miðvikudag. Þegar nýir eigendur Norðuráls, Century Alumininum, keyptu fyrirtækið af Kenneth Peterson snemma á þessu ári voru ítrekuð þau áform að stækka verksmiðjuna á Grundartanga enn meira og voru viðræður hafnar við Landsvirkjun um nauðsynleg orkukaup. Norðurál samdi reyndar í aprílmánuði við Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja um orkukaup vegna stækkunar úr 90 þúsund tonnum upp í 180 þúsund tonn. Norðurál hugðist hins vegar kaupa orku af Landsvirkjun vegna enn frekri stækkunar upp í 260 þúsund tonn en þeim viðræðum var slitið í síðasta mánuði. Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, segir að farið hafi fram viðræður, þar sem komið hafi í ljós að verðramminn hafi ekki samræmst þeim væntingum sem gerðar hafi verið. Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Norðuráli, segir það mat Norðuráls að verðið sem Landsvirkjun hafi boðið hafi verið of hátt að til að fjárfestingin gæti staðið undir sér. Norðurál sneri sér í staðinn til Orkuveitu Reykjavíkur og eru viðræður komnar það langt að stefnt er að undirritun viljayfirlýsingar næstkomandi miðvikudag. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir að ekki hafi verið stungið undan Landsvirkjun, það hafi legið beint við að semja við Norðurál og það sé nýbúið að semja við þá. Þetta er í fyrsta sinn sem sviptingar af þessu tagi verða hérlendis en með nýjum raforkulögum sem tóku gildi á síðasta ári hófst samkeppni á raforkumarkaði. Það að Norðurál skyldi velja Orkuveituna í stað Landsvirkjunar þýðir ráðist verður í enn meiri uppbyggingu jarðgufuvirkjana á Hengilssvæðinu. Hin umdeilda Norðlingaölduveita sunnan Þjórsárvera mun hins vegar bíða. Þorsteinn segir að hún hefði verið líklegur kostur, en leyfi sé í gildi næstu tíu árin, sem hlaupi ekkert í burtu. Allir kostir verði skoðaðir í stöðunni.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira