Söluferlið komið í gang 22. september 2004 00:01
Framkvæmdanefnd um einkakvæðingu ákvað í gærmorgun að auglýsa eftir ráðgjafa vegna sölu á hlut ríkisins í Símanum. Líklegast er að Síminn verði ekki seldur í einu lagi heldur í áföngum. Á sama fundi tók Jón Sveinsson við formennsku í nefndinni en aðrar mannabreytingar urðu ekki. "Það var ákveðið á fyrsta fundi í morgun að auglýsa eftir ráðgjafa. Málið er semsagt komið af stað. Það er farið í þann farveg að það fer nú út auglýsing til innlendra og erlendra aðila þar sem auglýst verður eftir ráðgjafa. Fresturinn til þess verður væntanlega til 25. október," segir Jón. Hann segir að ráðgjafi nefndarinnar muni starfa með nefndinni við mat á því hvernig heppilegast og best sé að fara í söluferlið. "Sú ákvörðun liggur ekki alveg fyrir á þessari stundu enda munu menn hlusta á ráðgjafann þegar hann hefur verið ráðinn í þetta verkefni," segir Jón. Hann segir þó að líkast til verði Síminn ekki seldur í einu lagi heldur verði einkavæðingin framkvæmd í þrepum en ekki er víst hvenær ferlið fer af stað. "Það er erfitt að setja tímasetningar í þessu sambandi en miðað við að þetta ferli fer af stað og menn fá ráðgjafa á verkefninu á þessum tíma þá má gera ráð fyrir að nóvember og desember fari í það að hluta til að móta hugmyndir um hvernig æskilegast og heppilegast sé að fara í söluna. Þannig að það er kannski ekki hægt að reikna með því að fyrsti áfangi sölunnar fari fram fyrr en á fyrri hluta næsta árs," segir Jón. Einkavæðingarnefnd hefur látið vinna fyrir sig mat á verði fyrirtækisins en þau gögn eru bundin trúnaði og vill Jón ekki svara því að svo stöddu hvaða verðhugmyndir ríkið hafi. Hann segir að mikið starf bíði nefndarinnar. Á næstu vikum mun nefndin ræða við sérfræðinga á innanlandsmarkaði í því skyni að meta markaðsaðstæður í aðdraganda sölunnar á Símanum.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira