Kennitöluflakk eykst 3. desember 2004 00:01
Samtök iðnaðarins rekja í pistli á vef sínum raunir fyrirtækis sem margsinnis varð fyrir því að tapa tekjum vegna gjaldþrota viðskiptavina sinna. Vakin er athygli á því í pistlinum að mörg fyrirtækjanna hafi samt sem áður haldið áfram störfum undir svipuðu nafni, með sömu stjórn og sömu símanúmer þrátt fyrir gjaldþrotið. Vandinn sem "kennitöluhopparar" valda viðskiptavinum sínum er mikill. Rekstrarvanda þeirra er í raun varpað yfir á viðskiptavinina, sem hvergi geta leitað sér skjóls. Þeir sem valda skaðanum halda áfram rekstri á nýrri kennitölu og bera því ekki fjárhagslegan skaða af ógöngunum. Jón Steindór Valdimarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir að hér sé að nokkru leyti við viðskiptalífið sjálft að sakast þar sem menn eigi ítrekað viðskipti við aðila sem orðið hafi uppvísir að kennitöluflakki og skilið eftir skuldir. Hið sama á við um hið opinbera og þekkjast dæmi þess að fyrirtæki með vafasama sögu hafi fengið úthlutað verkefnum hjá ríkinu. "Það er ótrúlega algengt að menn geti skilið eftir sig sviðna jörð en haldi áfram viðskiptum og okkur hefur þótt þetta frekar vera að færast í aukana en hitt," segir Jón Steindór. Hann segir jafnvel brögð að því að menn hreinlega geri út á kennitöluflakk. Til dæmis sé það auðveldara fyrir vinnuveitenda að halda áfram vonlausum rekstri vitandi það að starfmennirnir muni fá greidd laun úr Ábyrgðarsjóði launa. "Það eru ansi margir sem virðast vera alveg ótrúlega óheppnir í viðskiptum. Menn sem koma jafnvel að tugum gjaldþrota. Það fæst ekkert upp í kröfur, ábyrgðarsjóður borgar launin en peningarnir fara eitthvert," segir Jón Steindór. Hann segir mjög mikilvægt að stemma stigu við þessari þróun. Hann segir að tjónið sem kennitöluflakkarar valdi felist einnig í því að fyrirtæki þeirra fari geyst af stað með undirboðum á markaði þannig að fyrirtæki í traustari rekstri geti ekki staðist samkeppnina. Mikilvægt er þó að fara ekki of geyst í að herða reglur um gjaldþrot. "Það eru tvær hliðar á þessum peningi. Við viljum ekki að menn komist upp með að valda svona tjóni og snúa sér í hring og halda áfram. Á hinn bóginn verðum við að passa okkur á því að búa ekki þannig um hnútanna að fólk þori ekki í atvinnurekstur af ótta við gjaldþrot," segir Jón Steindór.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira