Ekki strax á markað í London 9. ágúst 2004 00:01
Ekki er ákveðið hvenær Actavis verður skráð á hlutabréfamarkað í Lundúnum en það verður ekki fyrr en eftir áramót og hugsanlega ekki fyrr en eftir að ársreikningur ársins 2004 liggur fyrir. Allur undirbúningur fyrir skráninguna gengur vel og starfar félagið nú þegar samkvæmt þeim reglum sem gilda á markaði í Lundúnum. Að sögn Róberts Wessman, forstjóra Actavis, taka nýjar uppgjörsreglur gildi á Englandi um áramót og myndi skráning á markað fyrir þann tíma fela í sér mikinn kostnað þar sem félagið þyrfti þá að leggja fram fjárhagsupplýsingar samkvæmt tveimur ólíkum uppgjörsaðferðum. Afkoma Actavis á öðrum ársfjórðungi var kynnt í gær og er hún nokkurn veginn í samræmi við væntingar greiningardeilda bankanna. Rekstrarhagnaður á tímabilinu nam 13,9 milljónum evra, eða um 1,2 milljörðum íslenskra króna. Á öðrum ársfjórðungi í fyrra var hagnaðurinn örlítið meiri en nú. Það sem af er ári er hagnaður Actavis rúmlega 9 prósentum hærri en fyrstu sex mánuðina í fyrra. Bréf í Actavis hækkuðu um tæp tvö prósent í Kauphöll Íslands í gær. Meðal þess sem dregur úr hagnaði nú er að kostnaður vegna nafnabreytingar, um 250 milljónir króna, er allur gjaldfærður á síðustu þremur mánuðum. Sala á árinu er heldur minni en áætlanir gerðu ráð fyrir. Að sögn Róberts er það meðal annars vegna reglubreytinga í Búlgaríu en þar stendur nú yfir vinna við að ákvarða hvaða lyf fáist endurgreidd hjá almannatryggingum. Stór hluti tekna Actavis verður til í Búlgaríu þar sem félagið á lyfjaverksmiðju. Á meðan óvissuástand sé uppi hafi flest fyrirtæki á Búlgaríumarkaði þurft að þola samdrátt í sölu. Hann segist þó telja að þegar endanlegar reglur liggi fyrir verði þær Actavis ekki óhagstæðar. Að sögn Róberts hafa kaup Actavis á tyrkneska lyfjafyrirtækinu Fako í byrjun árs gert það að verkum að samsetning útgjalda hefur breyst. Kostnaður við markaðssetningu vex hraðar en önnur útgjöld. Róbert segir þetta meðal annars stafa af því að lyfjamarkaðurinn í Tyrklandi sé þess eðlis að mun meiri markaðssetningu þurfi gagnvart læknunum sjálfum en annars staðar beinist hún í meiri mæli að heildsölum og öðrum milliliðum. Actavis stefnir á áframhaldandi vöxt á öllum sviðum. Bæði við framleiðslu og þróun lyfja og einnig með yfirtökum á öðrum fyrirtækjum. Þar líta stjórnendur til markaða í Evrópu og Norður-Ameríku en líklegt er að stór skref verði ekki stigin í þá átt fyrr en eftir skráningu og hlutafjárútboð á hlutabréfamarkaði í Lundúnum.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira