Gott gengi Marels 10. ágúst 2004 00:01
Sex mánaða uppgjör Marels sýnir töluvert betri niðurstöðu en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir. Hagnaður af rekstrinum á öðrum ársfjórðungi nam 2,54 milljónum evra (um 220 milljónir króna) en á sama tímabili í fyrra nam hagnaður af rekstrinum 1,7 milljón evra. Það sem af er ári er hagnaður Marels 3,8 milljónir evra sem er meira en á öllu árinu í fyrra. Gengi bréfa í Marel hækkuðu um 7,7 prósent í Kauphöll Íslands í gær. Það sem af er ári hefur verð á bréfum í félaginu ríflega tvöfaldast. Hörður Arnarson, forstjóri Marels, segist vera ánægður með uppgjörið og að bætt rekstrarstaða sé komin til af betri framlegð. Veltan hafi aukist og kostnaður lækkað. Félagið hefur unnið markaði í kjötiðnaði og segir Hörður vöxt félagsins vera fyrst og fremst í kjötiðnaði. Hann leggur þó áherslu á að ekki sé lesið um of í rekstrarafkomuna á þessum fjórðungi. "Þetta er náttúrlega stutt tímabil. Sex mánuðir eru ekki langur tími í sögu fyrirtækis," segir hann. Í tilkynningu frá félaginu segir að verkefnastaða sé "þokkaleg" um þessar mundir og að unnið sé að styrkingu á sölu og markaðskerfi á gömlum og nýjum mörkuðum félagsins. Hann segir Marel leggja áherslu á lausnir fyrrir minni framleiðendur sem hafa verið að ná góðum árangri og eins í stærri verkefnum fyrir matvælafyrirtæki. Marel hefur unnið að því undanfarin sex til átta ár að skapa sér markaðsstöðu í kjötiðnaði en upphaflega framleiddi Marel tæki til notkunar í fiskiðnaði. "Þessi markaður [kjötiðnaður] er mjög stór og hefur verið að vaxa þó nokkuð á síðustu árum," segir Hörður. Ytri aðstæður í rekstri Marels hafa ekki verið hagstæð. Hörður segir að þróun gengis Bandaríkjadals skipti miklu fyrir félagið en á síðustu misserum hefur Bandaríkjadalur verið ódýr. Hækki hann í verði hefur það jákvæð áhrif á afkomu Marels.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira