Flugleiðum hrósað fyrir dirfsku 27. október 2004 00:01
Greiningardeild fjármálarisans J.P. Morgan hælir Flugleiðum fyrir kaup á hlut í breska lággjaldaflugfélaginu easyJet. Flugleiðir hafa eignast yfir tíu prósent í breska félaginu. "Við hyllum stjórnendur Flugleiða fyrir að taka skýra afstöðu til hlutabréfa sem við teljum undirverðlögð á markaði," segir sérfræðingur J.P. Morgan í greiningarskýrslu í kjölfar kaupa Flugleiða í easyJet. Hann segir aðdáunarvert að stjórnendur Flugleiða sýni þann kjark að synda á móti straumnum og kaupa hlut í easyJet Sérfræðingur J.P. Morgan telur yfirtöku Flugleiða á easyJet ekki í spilunum. Til þess sé hlutur Stelios-fjölskyldunnar of stór og litlar líkur á að því hún vilji selja sig út úr félaginu. Sérfræðingur J.P. Morgan telur Flugleiðir ekki sjá samlegðaráhrif milli easyJet og Flugleiða, til þess sé viðskiptamódel félaganna of ólíkt. Niðurstaðan hljóti því að vera að Flugleiðir hafi séð langtímatækifæri á vanmati markaðarins á verðmæti easyJet. Sérfræðingur J.P. Morgan segir Flugleiðir væntanlega hafa komið auga á að í langtímasamningi easyJet við flugvélaframleiðendurna Airbus liggi veruleg dulin eign. Þrátt fyrir að Airbus A319 taki færri í sæti en vélar samkeppnisaðilans Ryanair, þá sé kostnaður á sæti lægri hjá easyJet. Við þetta bætist svo að easyJet gerði stóran kaupsamning við Airbus-verksmiðjunnar á hagstæðum kjörum vegna mikillar samkeppni Airbus og Boeing þegar eftirspurn dróst saman. Greiningardeild J.P. Morgan segir því endusöluverð vélanna í dag hærra en kaupsamningurinn hljóðar upp á. Flugleiðir þekkja vel til þessa þáttar flugrekstrar, enda hefur félagið hagnast á að selja notaðar vélar. Mat J.P Morgan er að Flugleiðir hafi einfaldlega greint þá duldu eign sem liggi í easyJet og hyggist hagnast þegar markaðurinn í heild geri sér grein fyrir þeim verðmætum sem liggi í félaginu.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira