Hvers vegna eru jól? 24. desember 2004 00:01 Jólahugvekja - Hr.Karl Sigurbjörnsson Fimm ára börnin sem spurð voru á síðum þessa blaðs um daginn hvers vegna jólin væru haldin, gátu ekki svarað því. Þau vissu allt um jólasveina og jólagjafir, en virtust ekki vita af Jesúbarninu. Mér fannst það dapurlegt. Ég vona svo sannarlega að einhver verði til að benda þeim, og öðrum börnum á raunverulegt tilefni jólanna. Vegna þess að þar er að finna það sem er mikilvægast alls. "Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu." Það sagði engillinn við hirðana. Og jólin enduróma orð þeirra og söng. Allir foreldrar og afar og ömmur þekkja hve undursamlegt það er þegar barn fæðist, hvernig allt ummyndast og tekur á sig annan blæ. Ungbarn vekur tilfinningar auðmýktar, umhyggju og gleði. Við hljóðnum í návist þess, og finnum til lotningar og virðingar. Það er einmitt slíkt sem Guð vill laða fram í lífi okkar. Með því að fæðast sem barn inn í þennan heim laðar Guð fram hið besta í okkur og leysir úr læðingi kærleikann sem trúir, vonar og umber allt og fellur aldrei úr gildi. Þess vegna birtist Guð ekki sem ofurhetja eða yfirþyrmandi kraftbirting, heldur sem varnalaust, allsvana barn í jötu. Í Jesúbarninu þráir Guð þig eins og barn þráir foreldra sína og kallar eftir athygli þeirra og umhyggju. Í Jesúbarninu er Guð að sýna þér hvað mest er og mikilvægast alls. Jatan er tákn Guðs gegn hroka og oflæti, barnið litla er vottur visku hans andspænis heimsins afli og auði, orð og sögur Jesú segja okkur hvað mestu máli skiptir. Þess vegna er okkur svo mikilvægt að rifja þetta upp og læra, og kenna börnunum okkar. Þess vegna eru jólin. Af sögu og orðum Jesú lærum við til dæmis að öll dýrmætustu gildi lífsins vaxa af rótum auðmýktar og kærleika. Það er auðvelt að gleyma því, ekki síst á allsnægtatímum þar sem nægtahornin virðast ótæmandi og tilboðin sífellt glæstari. En víst er að gleði og friður ná ekki að fylla hjarta manns ef friðleysi og streita, reiði og vantrú hefur sest að í sálinni. Hversu mjög sem tjaldað er til og á sig lagt til að ná sér í réttu stemningu hinna fullkomnu jóla, þá nægir það ekki. Því miður. En til að gera hreint hið innra nægir ekki að sópa út, heldur þarf að ljúka upp fyrir Guði, sem er kærleikur. Gleði og friður streymir fram í hjörtum þeirra sem ljúka upp fyrir kærleikanum. Hvers vegna eru jólin? Vegna þess að Guð gefur okkur þau. Guð sem elskar þennan heim og gaf son sinn, Jesú Krist, til lífs og heilla heiminum öllum. Jólaguðspjallið er frásagan af því, sagan af barninu sem lagt var í jötu, af trúfesti hirðanna og söng englanna. Þessi látlausa, yndislega saga mun óma um heimsbyggðina alla í nótt, í orðum og tónum, ljóði og söng. Hlustaðu eftir því sem hún er að segja! Og þiggðu þá gjöf sem þar er rétt til þín. Leitastu við að lifa í meðvitund um að þú ert umvafin ást og náð, umhyggju og kærleika Guðs allar stundir. Horfðu með þeim augum á jólaljósin, og taktu utan um þau sem þér eru næst, og hlustaðu eftir orðinu um frelsarann sem fæddur er, barnið í jötunni, sem er Drottinn þinn og Guð þinn. Hann gefi þér og þínum gleðileg jól. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Sjá meira
Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir Skoðun
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir Skoðun
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun