Landshornaflakk Súsönnu á Skjánum 14. júní 2004 00:01 "
Mig langar að vekja athygli á Íslandi sem ferðamannalandi fyrir Íslendinga," segir Súsanna Svavarsdóttir en hún verður með þátt á dagskrá Skjás eins í sumar sem ber heitið Landshornaflakkarinn. "Ég er búin að ferðast mikið innanlands og vil segja Íslendingum frá því sem landið hefur upp á að bjóða. Sagnaarfur okkar er mér líka hugleikinn og segja má að í þættinum verði fjallað um land, þjóð og sögu." Súsanna vill benda fólki á þá ferðaþjónustu og afþreyingu sem er að finna á landsbyggðinni. "Ég þekki svæðin auðvitað misvel og er því í sambandi við ferðamálafulltrúa á hverjum stað. En afþreyingarmöguleikar landsins eru fjölmargir. Til dæmis er gaman að fara í kajakferð frá Stykkishólmi eða á snjósleða á Arnarstapa. Svo er víða að finna athyglisverð söfn og menningarstofnanir fyrir þá sem vilja vera í rólegheitunum. Veitingastaðirnir úti á landi eru líka alltaf að verða betri og betri og fólk getur gist á tjaldstæðum eða í lúxushótelum eftir því hvort það er í rómantískri ferð með elskunni sinni eða á hringferð með stórfjölskylduna." Súsanna segist hafa fengið hugmyndina að þættinum þegar hún vann á ríkissjónvarpinu fyrir fimm árum. "Þá fannst mér svo mikið fyrirtæki að búa til einn sjónvarpsþátt. Maður fór ekki út úr húsi án þess að það fylgdi manni stór hópur af tæknifólki, hár og smink og útsendingarbíll. Mig langaði til að gera þátt sem væri ódýr í framleiðslu og þvælast um landið án alls umstangs," segir Súsanna en hún vinnur þáttinn með Þórarni Þórðarsyni kvikmyndatökumanni. "Þegar verið er að gera þátt um ferðaþjónustuna og náttúruperlur Íslands skiptir engu máli hvernig hárið á manni er og hvort sminkið er í lagi. Við Þórarinn verðum tvö á þvælingi um landið í allt sumar en hann tekur þáttinn og klippir. Þetta er mikil törn hjá okkur og við vinnum myrkranna á milli til að geta valið úr skemmtilegu efni þegar við komum í bæinn."
Menning Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Góðir straumar á Straumi Menning Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Fleiri fréttir Tæplega þriggja áratuga langt ferðalag á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“