Innlent

Fara yfir grundvallaratriði og meta stöðuna

Boði Logason skrifar
Slökkviliðsmenn fjölmenntu á fundinn í morgun.
Slökkviliðsmenn fjölmenntu á fundinn í morgun.
„Við erum að fara yfir grundvallaratriði í þessum málum og ræða saman," segir Sverrir Björn Björnsson formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Um 70 félagsmenn hittust í Húnabúð í Skeifunni klukkan níu í morgun til að fara yfir stöðuna í samningaviðræðum en þriðja verkfall þeirra hófst klukkan átta í morgun og lýkur á miðnætti.

Á fundinum eru slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn frá Keflavíkurflugvelli, Reykjavíkurflugvelli og höfuðborgarsvæðinu. Þá er fundurinn tengdur við Reykjanesbæ, Fjarðarbyggð og Akureyri. „Við erum að fara yfir það hvernig þetta gekk í nótt og meta stöðuna," segir Sverrir Björn en samningaviðræður stóðu til sex í morgun. Sverrir var svo mættur á fundinn klukkan níu og segist hafa fengið lítinn svefn. „Ég er búinn að sofa einhverjar tuttugu til fjörutíu mínútur, ég geri mér ekki grein fyrir því sjálfur."

Samningaviðræður í nótt stoppuðu á atriði sem er tæknilegs eðlis. Sverrir Björn vill ekki gefa upp hvaða atriði það er. „Það er atriði sem við eigum og er geymt í húsakynnum ríkissáttasemjara. Í svona kjarasamningum snýst þetta um mörg lítil atriði, þegar þau koma öll saman þá ná menn samningnum."

Og hann er bjartsýnn á að félagsmenn komi sterkari út af fundinum. „Menn koma alltaf sterkari út af svona fundum þegar þeir koma saman. Þetta er stór og góður fundur," segir hann.






Tengdar fréttir

Samningafundi slökkviliðsmanna lauk án niðurstöðu

Samningafundi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna með samninganefnd sveitarfélaga lauk hjá ríkissátatsemjara á sjötta tímanum í morgun, án árangurs og hefur annar fundur ekki verið boðaður.

Isavia samþykkir að opna flugvöllinn á Húsavík

Flugfélag Íslands hefur farið þess á leit við Isavia ohf. að flugvöllurinn á Húsavík verði opnaður í dag 13.ágúst 2010 fyrir flugvélar Flugfélagsins. Isavia hefur samþykkt að verða við þessari beiðni og hefur því flutt slökkvibifreið sína frá flugvellinum á Bakka til Húsavíkur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×