Tíska og hönnun

Nafnið bara passaði

Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir reka saman hönnunar­fyrirtækið Tulipop. Signý sér um að hanna vörurnar en Helga sér um viðskiptahlið fyrirtækisins.

Tíska og hönnun

Plötusnúður í verslunarrekstri

"Okkur langaði að opna búð með venjulegum fötum á góðu verði," segir Natalie Gunnarsdóttir, en hún opnaði nýverið fataverslun ásamt vinkonu sinni, Maríu Birtu, á Laugavegi 51 sem nefnist Altari.

Tíska og hönnun

Hin mörgu andlit Freju

Danska fyrirsæta Freja Beha Erichsen er súpermódel okkar tíma. Hún trónir á toppnum yfir vinsælustu fyrirsætur í heimi. Freja er kamelljón þegar kemur að fyrirsætustörfunum og allt fer henni bókstaflega vel.

Tíska og hönnun

Eitruð tíska

Fataframleiðsla er langt frá því að vera hættulaus starfsemi. Oft fer þessi vinna fram í löndum utan Evrópu eða Evrópu­sambandsins. Þar er vinnuafl ódýrara og hægt að fara í kringum reglur Evrópusambandsins í eiturefnanotkun og vinnuöryggi svo ekki sé minnst á umhverfis­vernd.

Tíska og hönnun

Dýrindis klæði

Hönnuðirnir Þórey Björk Halldórsdóttir og Richard P. Foley munu opna vefverslunina Worn By Worship 10. desember. Verslunin mun selja íslenska og erlenda fatahönnun og renna tíu prósent af hverri seldri vöru til góðgerðamála.

Tíska og hönnun

Fimm hlutir sem þú vissir ekki um Lindu Evangelista

Linda Evangelista var ein vinsælasta fyrirsæta tíunda áratugarins ásamt Naomi Campbell, Christy Turlington, Cindy Crawford og Claudiu Schiffer. Þær stöllur teljast til fimm áhrifamestu fyrirsætna heims og í viðtali við Vogue árið 1990 gantaðist Evangelista með það að hún færi ekki fram úr rúminu nema hún hlyti minnst eina milljón króna í dagslaun.

Tíska og hönnun

Hátíska í H&M

Á meðfylgjandi myndum má sjá hönnun franska tískuhússins Lanvin fyrir H&M. Hönnuðurinn er Alber Elbaz og línan samanstendur af kjólum, kápum, bolum, pilsum, skóm og hönskum. Í myndbandinu sem fer eins og logi yfir akur um netið þessa dagana má sjá módel eins og Natasha Poly, Tati Cotliar og Hannelore Knuts á lúxushótelherbergjum kvartandi yfir að elskhuginn færi þeim rósir í stað Lanvin-klæða. Herlegheitin, sem skoða má í myndasafni, fara í sölu í netverslun H&M og völdum búðum 23. nóvember.

Tíska og hönnun

Tískan á bleika dreglinum

Tískusýningar undirfataframleiðandans Victoria's Secret hafa ávallt vakið mikla athygli enda ansi litríkar og glaðlegar. Gestir á sýningunni á dögunum gengu ekki rauða dregilinn heldur þann bleika og hér má sjá nokkrar myndir af því sem gestirnir klæddust á sýningunni.

Tíska og hönnun

Gallerí Dunga

Gallerí Dunga á Geirsgötu 5a er listagallerí sem selur verk aðeins eftir íslenskar listakonur. Við kíktum í heimsókn þar sem eigendurnir Ingibjörg Klemenz og Dunna sýndu okkur galleríið.

Tíska og hönnun

Fjórir snyrtipinnar: Á meðan bíllinn bíður

Margt getur orðið til þess að menn verða seinir fyrir þegar búið er að mæla sér mót. Hver mínúta er því dýrmæt ef útlitið á að vera í lagi. Fréttablaðið fékk fjóra annálaða snyrtipinna til að segja frá því hvernig þeir myndu verja tíu dýrmætum mínútum í að taka sig til, meðan leigubíllinn biði fyrir utan.

Tíska og hönnun

Hanna og sauma íslensk barnaföt

Hönnuðir íslensku barnafatalínunnar Húnihún, Diljá Jónsdóttir og Ríkey Kristjánsdóttir, framleiða og hanna frá grunni fatnað á drengi frá aldrinum eins til sex ára. Í meðfylgjandi myndskeiði, sem var tekið í hönnunarversluninni Kirsuberjatréð á Vesturgötu 4 í Reykjavík í morgun, sýna Diljá og Ríkey meðal annars fatnaðinn, segja frá þeirra samvinnu og hvenær hugmyndin varð til.

Tíska og hönnun

Á heima á síðum Vogue

Katrín Ósk Guðlaugsdóttir, meistaranemi í hárgreiðslu, vann til silfurverðlauna í Wella Trend Visionkeppninni í París en keppnina hafa virtustu tískublöð valið „Event of the year“ síðustu tvö ár í röð.

Tíska og hönnun

Töff tískusýning í Tjarnarbíói

„Sýningin verður lokaviðburðurinn í viku Unglistar, listahátíðar unga fólksins,“ segir María Nielsen, nemandi Tækniskólans í Reykjavík en hún er einn af skipuleggjendum tískusýningar sem haldin verður í Tjarnarbíói á laugardaginn. Alls taka 33 nemendur á fataiðnbraut Tækniskólans þátt í tískusýningunni og sýna þar hönnun sína og hæfni í handverki.

Tíska og hönnun

Í kjól hvernig sem viðrar

Það eru kannski ekki margir sem bíða með eftirvæntingu eftir að Vetur konungur knýi á dyr. Búðarkonan Sigrún Edda Eðvarðsdóttir er þó ein þeirra sem fagna ávallt komu hans.

Tíska og hönnun

Valentino yngir upp

Tvíeykið Pier Paolo Piccioli og Maria Grazia Chiuri hefur heillað tískuheiminn upp úr skónum að undanförnu en þau hanna undir merkjum tískurisans Valentino.

Tíska og hönnun

Smíðaði fyrir Veru Wang

Gullsmiðurinn Orri Finnbogason hefur starfað að mestu leyti í New York síðustu 15 ár og ljáð stórum nöfnum í tískubransanum krafta sína. Hann hannar og smíðar eigin skartgripi sem njóta vinsælda.

Tíska og hönnun

Hollywood elskar LANVIN

Franski tískurisinn Lanvin er dýrkaður af stjörnunum í Hollywood. Þær fá ekki nóg af honum, þær bókstaflega elska kjólana eftir hann. Meðfylgjandi má sjá myndir meðal annars af Cameron Diaz, Jessicu Alba, Rihönnu, Jennifer Aniston, Maggie Gyllenhaal, Juliu Roberts, Blake Lively og Söruh Jessicu Parker í Lanvin dressum.

Tíska og hönnun

Íslenskt hugvit á bak við handklæði

Í meðfylgjandi myndskeiði sýna vöruhönnuðurnir Friðgerður Guðmundsdóttir og Kristín Birna Bjarnadóttir, sem skipa hönnunarfyrirtækið GERIST, Reykjavíkurhandklæðið þeirra sem vann 1. verðlaun í samkeppni um minjagrip á vegum Reykjavíkurborgar og Hönnunarmiðstöðvar Íslands 2010. Reykjavíkurhandklæðið er hannað útfrá gömlu heitu pottunum í Laugardalslauginni. Facebooksíða Gerist.

Tíska og hönnun

Fékk innblástur frá bróður sínum sem er fallinn frá

Í meðfylgjandi myndskeiði sem tekið var í Bleika boðinu á vegum Krabbameinsfélagsins, segir Anna Kristín Magnúsdóttir, sem er útlærður fatahönnuður frá Margrethe skolen í Kaupmannahöfn, frá fyrirtækinu hennar My beautiful Raven sem hún tileinkar bróður sínum Hrafni sem er fallinn frá. Hönnunarlínan hjá My beautiful Raven var innblástur frá þessum þjóðarfugli íslendinga, Hrafninn, og fallega bróður mínum sem var mér svo mikill innblástur," sagði Anna Kristín. Í hönnunarlínunni eru fáanleg yfirhafnir sem hjálpar hverri konu að finna Raven inni í sér. Svo er ég með línuna ANNA design sem er byggð á aukahlutum, kjólum og toppum. Þetta er falleg lína sem konur geta fundið eitthvað sem hentar vel í fataskápinn" MB Raven einbeitir sér að því að byggja upp öðruvísi og stórglæsilega yfirhafnir fyrir konur úr framúrskarandi íslenskum gæðum. Vörurnar frá My beautiful Raven eru gerðar úr íslenskri ull, íslensku mokkaskinni, laxa- og karfaleður," sagði Anna Kristín. Anna Kristín á Facebook (Anna Design).

Tíska og hönnun

Tískuvikan í Kína hafin

Fysti dagur tískuvikunnar, China Fashion Week Spring/Summer 2011, hófst 25. október í Beijing í Kína. Á fyrsta deginum var haldin förðunarkeppni og eins og myndirnar sýna vantaði ekki hugmyndflugið hjá keppendum í ár. Fjölbreyttar og ekki síður litríkar útfærslur má skoða betur í myndasafni.

Tíska og hönnun

Kiosk

Eygló Margrét Lárusdóttir og Hlín Reykdal sem reka og eiga hönnunarverslunina Kiosk á Laugavegi 33 kynntu vörur sínar á bleika kvöldinu sem haldið var á vegum Krabbameinsfélagsins á föstudaginn var í Háskólanum í Reykjavík. Við erum níu útskrifaðir hönnuðir sem seljum alls konar vörur yndislegar töskur og fylgihluti. Við splittum bara leigunni og stöndum vaktina," sögðu þær meðal annars eins og sjá má í myndasafninu.

Tíska og hönnun

Íslensk hönnun sem má borða

Í Bleika boðinu sem haldið var á vegum Krabbameinsfélagsins seldu og kynntu Þórunni Hannesdóttur og Herborgu Hörpu Ingvarsdóttur sem skipa hönnunarfyrirtækið FÆRIÐ bleika slaufuhlaupið sem er snilldarhugmynd sem þær létu verða að veruleika.

Tíska og hönnun

Fágað og fallegt

Fatamerkið Kalda hefur sent frá sér nýja fatalínu sem ber nafnið Hvörf. Katrín Alda Rafnsdóttir hönnuðurinn lýsir línunni sem fágaðri og kvenlegri.

Tíska og hönnun