Rafíþróttir

Ármann felldi meistarana
Leikurinn fór fram á Ancient og hófu NOCCO Dusty-menn leikinn í vörn. Dusty voru enn taplausir í deildinni fyrir leik en Ármann byrjuðu leikinn þó mun betur og tóku fyrstu 6 loturnar með þó nokkrum yfirburðum.

FH hafði betur gegn Blikum
Leikurinn fór fram á Anubis og byrjuðu Blikar leikinn í vörn. FH-ingar tóku fyrstu tvær loturnar en leikmenn Breiðabliks voru ekki lengi að jafna stöðuna í 2-2. Hvorugt liðið náði að slíta sig frá hinu og staðan var orðin 6-6 eftir tólf lotur.

Atlantic aftur á sigurbraut
Leikurinn fór fram á Nuke og hófu Saga-menn leikinn á að sigra skammbyssulotuna í sókn. Byrjunin var þeim áfram í hag, en eftir 6 lotur var staðan 2-4. Atlantic náðu þó að taka leikinn föstum höndum og sigruðu hvorki meira né minna allar lotur sem eftir lifðu hálfleiks. Brnr leiddi fellutöfluna og var með yfir 20 fellur í fyrri hálfleik.

Ten5ion með nauman sigur
Leikurinn fór fram á Vertigo þar sem ÍA tóku hnífalotuna og völdu að byrja í vörn. Leikurinn fór jafn af stað eftir af ÍA tóku skammbyssulotuna og staðan var 2-2 eftir 4 lotur. Yzo, leikmaður Ten5ion náði ás í sjöttu lotu leiksins til að koma stöðunni í 3-3.

Þórsarar halda sigurgöngunni áfram
Fyrsti leikur ofurlaugardagsins fór fram á Anubis þar sem Þórsarar stilltu sér upp í vörn gegn Eyjamönnum í vörn. Þórsarar byrjuðu leikinn betur og tóku skammbyssulotuna ásamt lotu tvö, en Eyjamenn voru fljótir að ná lotu til baka.

Ofurlaugardagur í Ljósleiðaradeildinni
Á morgun er ofurlaugardagur í Ljósleiðaradeildinni, en ofurlaugardagar fela í sér að heil umferð er spiluð á einum og sama deginum. Fyrsti leikur hefst kl. 17:00 og fer öll útsendingin fram í Arena, þar sem gestagangur verður hjá lýsendum kvöldsins.

Tilþrifin: Peter birtist úr reyknum og tekur út þrjá
Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það Peter í liði Þórs sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Þórsarar skildu Blika eftir í rykinu
Þór vann afar öruggan sigur er liðið mætti Breiðabliki í lokaleik fimmtu umferðar Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike í kvöld.

Ten5ion heldur í við toppliðin
Ten5ion heldur enn við í topplið Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike eftir góðan sigur gegn SAGA í kvöld.

Meistararnir fóru illa með botnliðið
Ríkjandi Stórmeistarar Atlantic unnu afar öruggan sigur er liðið mætti ÍBV í fimmtu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike í kvöld.

Tilþrifin: Ofvirkur bjargar Ármanni
Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það ofvirkur í liði Ármanns sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Ármann fór illa með ÍA og heldur í við toppliðið
Ármann vann afar öruggan sigur er liðið mætti ÍA í fimmtu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike í kvöld.

Dusty jók forskot sitt á toppnum
NOCCO Dusty vann öruggan sigur er liðið mætti FH í fyrsta leik fimmtu umferðar Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike í kvöld.

Ljósleiðaradeildin í beinni: Heldur sigurganga meistaranna áfram?
Ljósleiðaradeildin í Counter-Strike heldur áfram í kvöld. Tvær viðureignir fara fram og hefjast leikar kl. 19:30 þegar FH mætir NOCCO Dusty.

Heilsusamleg rútína í fyrsta sæti
Gísli Geir Gíslason spilar undir nafninu TripleG fyrir ÍA í Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike. Gísli er 25 ára og alinn upp í sveit og hann telur sig hafa verið aðeins 12 ára þegar hann spilaði Counter-Strike í fyrsta sinn. Hann sá leikinn í tölvunni hjá bróður sínum ungur að aldri og segist hafa stolist í leikinn af og til hjá honum og strax fengið áhuga.

Tilþrifin: ShiNe hendir kjarnorkusprengju í lið Ten5ion
Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það shiNe í liði ÍBV sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

ÍBV sá aldrei til sólar gegn Ten5ion
Ten5ion er komið upp í 3. sæti Ljósleiðaradeildarinnar eftir öruggan 16-7 sigur á ÍBV.

Ármann jafnar Þór að stigum með góðum sigri
Ármann er nú með jafn mörg stig og Þór í 2. sæti Ljósleiðaradeildarinnar. Ármann vann góðan 16-14 sigur á Saga í kvöld.

Þór upp í annað sætið
Þór lagði FH í hörkuleik í Ljósleiðaradeildinni þar sem keppt er í hinum vinsæla tölvuleik Counter-Strike: Global Offensive. Lokatölur í kvöld 16-6 Þór í vil.

Í beinni: Þrír spennandi leikir í Ljósleiðaradeildinni
Fjórðu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike lýkur í kvöld en 3 viðureignir eru á dagskrá.

Tilþrifin: Hugo stillir upp þremur í röð
Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það Hugo í liði Atlantic sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Meistararnir unnu loksins sinn fyrsta sigur
Stórmeistarar Atlantic unnu loksins sinn fyrsta sigur á tímabilinu er liðið mætti Breiðablik í þriðju umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike í kvöld.

Dusty hafði betur í toppbaráttunni og sigurgangan heldur áfram
NOCCO Dusty er enn með fullt hús stiga í Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike eftir nokkuð öruggan sigur gegn ÍA í toppslag deildarinnar í kvöld.

Ljósleiðaradeildin í beinni: Toppslagur og nýr leikur
Fjórða umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike hefst í kvöld með tveimur leikjum, en báðir eru þeir á milli liða sem sitja hlið við hlið í stigatöflunni.

„Hef spilað leikinn síðan ég var sex ára“
Magnús Árni Magnússon er leikmaður Breiðabliks í Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike. Hann spilar undir nafninu Viruz, er menntaður hugbúnaðarverkfræðingur og starfar sem forritari.

Tilþrifin: Ískaldur Biggzyyy einn gegn þremur
Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það Biggzyyy í liði ÍBV sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Eyjamenn þurfa enn að bíða eftir fyrsta sigrinum
Ármann vann góðan sigur er liðið mætti ÍBV í þriðju umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO í kvöld.

Meistararnir sáu aldrei til sólar og eru enn án stiga
Ríkjandi meistarar Atlantic máttu þola stórt tap er liðið mætti Þór í þriðju umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO í kvöld.

ÍA batt enda á sigurgöngu FH
ÍA varð í kvöld fyrsta liðið til að vinna sigur gegn FH í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO er liðin mættust í þriðju umferð.

Ljósleiðaradeildin í beinni: Meistararnir enn í leit að sínum fyrsta sigri
Þriðju umferð Ljósleiðaradeildarinnar lýkur í kvöld. Þrír leikir eru á dagskrá en stigataflan er afar jöfn enn sem komið er. Keppt verður í CS:GO í kvöld þrátt fyrir að CS2 sé kominn út.