Rafíþróttir

Ten5ion heldur í við toppliðin

Snorri Már Vagnsson skrifar
sagaten5ion

Ten5ion heldur enn við í topplið Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike eftir góðan sigur gegn SAGA í kvöld.

Leikurinn fór fram á Mirage. Ten5ion hafði alla yfirburði í fyrri hálfleik, en þeir spiluðu þar sóknina meistaralega á Mirage. Pressi, Yzo og Dezt leiddu fellutöflu Ten5ion-manna þar en þeir sigruðu níu af fyrstu tíu lotum leiksins og staðan því 1-9 og Saga-menn töpuðu einvígi eftir einvígi.

Leikmenn Saga náðu þó að krafsa nokkrar lotur til baka í lok fyrri hálfleiks, og komu stöðunni í 3-10. Ten5ion lét þó ekki deigan síga og fundu sigurleið að nýju. Ten5ion tók því restina af lotum fyrri hálfleiks.

Staðan í hálfleik: 3-12

Saga hafði risastórt verkefni fyrir höndum í seinni hálfleik, en þeir máttu ekki leyfa Ten5ion að taka fleiri en þrjár lotur til að halda líflínu í leiknum. Þá skiptir skammbyssulotan í upphafi hálfleiks miklu máli, en Saga náðu ekki að knýja fram sigur í henni.

Slappt gengi Saga hélt áfram í seinni hálfleik þar sem þeir sigruðu aðeins fjórar lotur. Ten5ion tóku því sannfærandi sigur eftir vægast sagt mikla yfirburði gegn leikmönnum Saga.

Lokatölur: 7-16

Eftir svekkjandi tap eru Saga enn með aðeins 2 stig og því komnir í næst neðsta sæti deildarinnar. Ten5ion halda sér áfram í toppbaráttunni og jafna Ármann í öðru sæti með 8 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×