Dybala kom Juve til bjargar gegn AC Milan

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Bjargvættur kvöldsins
Bjargvættur kvöldsins vísir/getty
Juventus endurheimti toppsætið í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld þegar liðið fékk erkifjendur sína í AC Milan í heimsókn. 

Leikurinn var hreint ekki mikið fyrir augað og stefndi raunar allt í markalaust jafntefli.

Argentínumaðurinn Paulo Dybala kom inn af bekknum hjá Juventus fyrir Cristiano Ronaldo á 55.mínútu og það átti eftir að borga sig því Dybala skoraði eina mark leiksins á 77.mínútu og tryggði Juventus 1-0 sigur.

Sigurinn fleytir Juve upp fyrir Inter en einu stigu munar á liðunum í tveimur efstu sætum deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira