Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Skallagrímur 61-72 | Skelfileg byrjun Borgnesinga kom ekki að sök Guðmundur Steinarsson í Mustad-höllinni skrifar 30. nóvember 2016 22:30 Tavelyn Tillman skoraði 29 stig fyrir Skallagrím og tók 11 fráköst. vísir/ernir
Grindavíkurstúlkur tóku á móti nýliðum Skallagríms í Mustad-höllinni i kvöld. Gengi liðanna hefur verið ólíkt það sem af er vetri. Grindavík á botni deildarinnar með 4 stig en Skallagrímur í því þriðja með 12 stig. Leikurinn byrjaði frekar rólega, liðunum gekk frekar illa að skora. Heimastúlkur tóku frumkvæðið og voru skrefi á undan gestunum frá Borgarnesi. Bæði lið voru að spila ágætis vörn og það bitnaði á sóknarleiknum. Staðan eftir 1.leikhluta var 15-7 Grindvíkingum í vil. Skallagrímur mættu grimmari inn í annan leikhluta og fóru að hitta örlítið betur. Grindavík hleypti þeim þó ekki of nálægt og virtust vera með fín tök á leiknum. Í hálfleik voru það heimastúlkur sem leiddu með 6 stigum 33-27. Borgnesingar mættu grimmar til leiks eftir hálfleikinn og voru á skömmum tíma búnar að jafna og komnar yfir. Þetta áhlaup virtist slá Grindavík útaf laginu í smá tíma. Liðin skiptust á að hafa forystu og allt stefndi í spennandi loka leikhluta. Skallagrímur var yfir, 50-53, eftir 3. leikhluta. Það var sama barrátta í upphafi 4. leikhluta, Grindavík gerði gott áhlaup á gestina úr Borgarnesi. Liðin héldu áfram að skiptast á forystu þangað til að um 4 mínútur voru eftir að þá sigu gestirnir framúr og unnu að lokum 11 stiga sigur, 61-72.Af hverju vann Skallagrímur ? Þær voru með jafnari leik, nýttu sína styrkleika betur en Grindavík. Skallagrímur spilaði fast í kvöld og fór það á köflum í taugarnar á Grindvíkingum. Gestirnir úr Borgarnesi eru með ágætlega hávaxið lið og það kom sér vel í kvöld, þar sem að skotnýting þeirra var slök en þær jöfnuðu það út með að hirða mikið af fráköstum og fá þannig fleiri tækifæri í hverri sókn til að skora.Bestu menn vallarins. Tavelyn Tillman var best í kvöld. Hún fór seint í gang en stýrði liði Skallagríms til sigurs í kvöld. Tillman endaði leikinn með 29 stig og 11 fráköst. Hennar fyrstu stig komu þó ekki fyrr en eftir rúmar þrjár mínútur í öðrum leikhluta. Ashley Grimes var allt í öllu í liði Grindavíkur með 36 stig og 14 fráköst. Liðið virðist treysta of mikið á hana í sóknarleiknum og það kom að sök undir lok leiksins þegar Grimes var orðin of þreytt til að geta látið til sín taka.Tölfræði sem vakti athygli Skotnýting liðanna var skelflieg í kvöld. Skallagrímur hitti úr 3 af 24 þriggja stiga skotum sínum. Þær náðu að bæta það upp með 23 sóknarfráköstum sem er flott tölfræði. Ekki var skotnýting stúlknanna frá Borgarnesi fyrir innan þriggja stiga línuna betri eða rúm 26% sem er slök nýting hjá jafn góðu liði og Skallagrími. Grindvíkingar voru litlu skárri, hittu úr 7 af 39 þriggja stigaskotum og voru með rúm 27% nýtingu fyrir innan þriggja stiga línuna.Hvað gekk illa ? Sóknarleikur liðana í kvöld var því miður ekki sá besti. Virkilega slök skotnýting og mikið um tapaða bolta. Í kvöld voru 2 atvinnukonur og 3 landsliðskonur að spila og þar fyrir utan í báðum liðum leikmenn sem hafa verið í landsliðinu og með mikla reynslu, miðað við það hefði mátt búast við flottum leik. En svo var ekki raunin, mikið af byrjendamistökum, slök skotnýting og alltof mikið af misheppnuðum sendingum. Líklegast hittu allar þessar flottu körfuboltakonur á slæman dag á sama tíma, þannig að líklegast verður næsti leikur mun betri hjá þeim öllum því þetta var óvenjuleg sjón í kvöld.Grindavík-Skallagrímur 61-72 (15-7, 18-20, 17-26, 11-19)Grindavík: Ashley Grimes 36/14 fráköst/3 varin skot, María Ben Erlingsdóttir 9/13 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 6, Sigrún Elfa Ágústsdóttir 5, Ingibjörg Jakobsdóttir 2, Lovísa Falsdóttir 2/5 fráköst, Jeanne Lois Figueroa Sicat 1/5 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 0/8 fráköst.Skallagrímur: Tavelyn Tillman 29/11 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 12/7 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 9/12 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 8, Fanney Lind Tomas 6/5 fráköst, Auður Íris Ólafsdóttir 4/10 fráköst, Guðrún Ósk Ámundadóttir 2/5 fráköst, Sólrún Sæmundsdóttir 2, Sigurbjörg Rós Sigurðardóttir 0/5 fráköst.Bjarni: Barátta við kollinn á okkur Bjarni Magnússon, þjálfari Grindavíkur, var ekkert alltof hress eftir leik í kvöld. Grindavík byrjaði leikinn vel og var með ágætis tök á honum en í seinni hálfleik var annað á boðstólnum. „Við hittum svo sem ágætlega í byrjun en sóknarlega vorum við mjög daprar. Við höfum eytt minna púðri í sóknarleikinn síðustu tvær vikur og meira í varnarleikinn á æfingum. En við vorum að hreyfa boltann of lítið og ég er óánægður með það“ sagði Bjarni eftir leikinn í kvöld. Lykilleikmenn Grindavíkur voru komnir í smá villuvandræði í 3. leikhluta og þá reyndi á breidd liðsins. „Já já ég vil að leikmenn nota þessar villur sem má fá, vil frekar að stelpurnar fái villur heldur en að hleypa leikmönnum framúr sér og skori auðveldlega“ sagði Bjarni. Grindavík situr á botni deildarinnar. Aðspurður hvort það þurfi ekki eitthvað að fara gerast hjá Grindavík og snúa við gengi liðsins sagði Bjarni: „Þessi leikur er búinn og við ætluðum að ná í sigur í dag en það gekk ekki. Mér finnst vera batamerki á nokkrum stöðum. En það er erfitt að tapa mörgum leikjum þá er þetta orðin barátta við kollinn á manni og það er sú barátta sem er í gangi hjá okkur núna,“ sagði Bjarni að lokum eftir leikinn í Grindavík í kvöld.Sigrún Sjöfn: Komast fyrst í úrslitakeppnina áður en horft er á titilinn Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, leikmaður Skallagríms, var ánægð eftir sigurinn á Grindavík í kvöld. „Karakterssigur, við vorum í erfiðleikum allan leikinn. Byrjuðum illa en bættum okkur alltaf smátt og smátt eftir því sem leið á leikinn,“ sagði Sigrún Sjöfn við blaðamann Vísis eftir leik. Skallagrímur byrjaði leikinn illa og skoraði aðeins 7 stig í 1. leikhluta og 27 stig í fyrri hálfleik. „Við töluðum um í hálfleik að skotnýtning væri hræðileg og þyrfum að bæta okkur í vörninni,“ sagði Sigrún Sjöfn. Leikurinn var frekar harður og leit út fyrir nokkrum sinnum í leiknum að það myndi sjóða uppúr. En góðir dómarar leiksins voru með allt á hreinu. „Þetta var erfiður leikur, hann tók á líkamlega og alveg pústrar hér og þar bara eins og gengur í svona leikjum,“ sagði Sigrún Sjöfn. Aðspurð hvort um vanmat hafi verið að ræða í upphafi leiks að mæta liðinu í neðsta sæti vildi Sigrún Sjöfn meina að svo væri ekki og að það hefði verið búið að fara yfir það fyrir leik. „Þær eru með hörkulið og hörkuleikmenn, allir geta skorað, en við vorum staðar og ekki nægilega hreyfanlegar í byrjun en svo kom það,“ sagði Sigrún Sjöfn og vill meina að það sé ekki pressa á liðinu þrátt fyrir spá um gott gengi í vetur. En Skallagrímur er nýliði í deildinni og var spáð Íslandsmeistaratitlinum af spekingum í upphafi vetrar. „Við tökum bara einn leik í einu og eitt skref í einu. Við erum ekki að horfa á Íslandsmeistaratitilinn, ætlum að sjá hvort við getum ekki skilað okkur í úrslitakeppnina fyrst og sjá svo til eftir það,“ sagði Sigrún Sjöfn kát að lokum.Bein lýsing: Grindavík - Skallagrímur
Dominos-deild kvenna Tengdar fréttir Hallveig tók yfir í framlengingunni | Þriðji 50 stiga leikur Tyson-Thomas Heil umferð fór fram í Domino's deild kvenna í körfubolta í kvöld. Allir fjórir leikirnir unnust á útivelli. 30. nóvember 2016 21:30 Mest lesið Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Í beinni: Valur - Grindavík | Úrslitin fara af stað Körfubolti Stjarnan handtekin á leiðinni á völlinn: „Hann er á leið í fangelsi“ Golf Efsti kylfingur á heimslista á yfir höfði sér fjórar ákærur Golf Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Enski boltinn Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan Golf Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Handbolti Upphafshöggi frestað vegna banaslyss skammt frá vellinum Golf Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Enski boltinn Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Fleiri fréttir Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Leik lokið: Valur - Grindavík | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Oddaleikur í opinni dagskrá: Grindvíkingar taka á móti Keflvíkingum Oddaleikur í opinni dagskrá: Allt undir á Hlíðarenda Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Njarðvík 85-82 | Ótrúlegur endir skilaði Val í úrslit Íslandsmótsins Sjá meira
Hallveig tók yfir í framlengingunni | Þriðji 50 stiga leikur Tyson-Thomas Heil umferð fór fram í Domino's deild kvenna í körfubolta í kvöld. Allir fjórir leikirnir unnust á útivelli. 30. nóvember 2016 21:30
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Njarðvík 85-82 | Ótrúlegur endir skilaði Val í úrslit Íslandsmótsins