Stóriðja borgar fjórðung af því orkuverði sem heimili borga 16. apríl 2010 14:21 Frá ársfundi Landsvirkjunar á Grand Hóteli í dag. Hörður Arnarson í pontu.
Stóriðja borgar rúmlega fjórðung af því orkuverði sem heimili landsins borga. Stóriðjan borgar 3,3 kr. á kwst en heimilin borga 11,3 kr. á kwst miðað við gengi dollarans núna. Þetta kom fram í máli Harðar Arnarsonar forstjóra Landsvirkjunnar á aðalfundi félagsins sem nú stendur yfir. Hér er miðað við endanlegt verð íslenskra heimila, með orkuskatti, flutnings- og dreifingarkostnaði og virðisaukaskatti. Hörður segir að Landsvirkun standi nú á tímamótum og upplýsingagjöf um orkuverðið til stóriðjunnar sé liður í því að gera rekstur félagsins opnari og gegnsærri en hann hefur verið. Launung um orkuverðið hafi hingað til alið á tortryggni í garð Landsvirkjunnar. Fram kom í máli forstjórans að þrátt fyrir þennan mikla mun sem er á raforkuverði til stóriðju og heimila megi nefna að orkuverð til heimila hafi lækkað um tæp 20% frá árinu 2002. Einnig megi benda á að orkuverð til almennra notenda á Íslandi sé mun lægra en gengur og gerist í nágrannalöndum okkar. Hvað rekstur Landsvirkjunnar varðar almennt segir Hörður að fjármagnskostnaður sé mikill þessa stundina og aðgangur að lánsfé erlendis sé erfiður. Hinsvegar sé unnið hörðum höndum við að hámark arðgreiðslur af starfseminni til handa eigenda félagsins, það er ríkissjóði. Ársfundur Landsvirkjunar í dag er sögulegur, því fyrirtækið er að upplýsa í fyrsta sinn um það verð sem stóriðjufyrirtækin greiða fyrir raforkuna, en til þess hefur verðið verið hulið leyndarhjúpi.
Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Sjá meira