Innlent

Lögreglufélag Reykjavíkur tekur undir neyðarkall lögreglumanns

Vísi hefur borist tilkynning frá Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur þar sem hún tekur undir sjónarmið lögreglumannsins sem sendi bréf til Vísis og lýsti óásættanlegu vinnuumhverfi lögreglumanna.

Hér má lesa tilkynninguna í heild sinni:

„Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur (LR) getur ekki annað en tekið undir sjónarmið lögreglumanns sem kom fram í bréfi er birt var á visir.is þann 21/7 og skorar í framhaldi af því á stjórnvöld að endurskoða fyrirhugaðan niðurskurð fjármála til lögreglu.

Stjórn LR hefur ítrekað bent á versnandi ástand í löggæslumálum, öryggi lögreglumanna og öryggi íbúa en talað fyrir daufum eyrum.

Nýjar tölur embættis Ríkislögreglustjóra hafa jafnframt varpað en frekara ljósi á ástandið er varðar aukna glæpi og öryggi íbúa og undirstrikar með því orð LR í þeim málum.

LR tekur einnig fram að þetta bréf er ekki skoðun þessa eina lögreglumanns heldur endurspeglar hug flestra félagsmanna. Stjórn LR getur staðfest að lögreglumenn haf í auknum mæli lýst yfir áhyggjum sínum af eigin öryggi í starfi."












Tengdar fréttir

Stjórnmálamenn þurfa að hlusta á sjónarmið lögreglunnar

„Þessi sjónarmið að það á ekki ekki að ganga nærri lögreglunni á þessum tímum eru sjónarmið sem ég hef haldið skýrt á lofti. En það er fjárveitingavaldið sem stjórnmálamennirnir stjórna sem þurfa að hlusta á þessi sjónarmið sem koma úr öllum áttum innan lögreglunnar," segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.

„Við erum ekki einu sinni reiðir lengur, við erum bara orðnir þreyttir“

„Niðurskurðurinn eru 51,1 milljón og því verður ekki náð nema með stórfelldum niðurskurði á yfirvinnu og með því að segja starfsfólki upp," segir Snorri Magnússon, formaður Landsamabands lögreglumanna en Vísir sagði frá áhyggjufullum lögreglumanni í morgun sem sendi fréttastofu bréf þar sem hann lýsti erfiðu starfsumhverfi lögreglumanna.

Neyðarkall frá lögreglumanni

Lögreglumönnum er stefnt í hættu vegna fámennis í lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í sumum tilfellum eru þeir einir á bílum, jafnvel á næturvöktum um helgar. Svo hljóðar bréf sem fréttastofa Vísis og Stöðvar 2 fékk sent í gærkvöld frá manni sem segist vera lögreglumaður. Maðurinn segist ekki koma fram undir nafni af ótta við yfirstjórn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×