Innlent

Lítil sem engin sýnileg löggæsla í borginni

Dagur B Eggertsson borgarfulltrúi Samfylkingar.
Dagur B Eggertsson borgarfulltrúi Samfylkingar.

Í ljósi frétta af háskalega fámennri vakt lögreglu í miðborginni um helgar ítrekar minnihluti borgarráðs athugasemdir sínar við að í vinnu nefndar borgarstjóra að miðborgarmálum skuli ekki hafa verið kallað eftir aukinni og sýnilegri löggæslu, sbr. bókun minnihlutans á fundi borgarráðs 3. júlí sl. Þá er ítrekað að minnihlutinn lagði á sama fundi fram neðangreinda fyrirspurn, að gefnu tilefni:

"Óskað er eftir því að kannað verði hvernig þróun mannafla lögreglunnar á miðborgarvakt hefur orðið frá því síðasta sumar en síðasta haust var kynnt að sýnileg löggæsla yrði efld í Miðborginni."

Furðu vekur að borgarráði hafi ekki verið svarað og mat lagt á þá stöðu sem uppi er í löggæslumálum borgarinnar því engin ein aðgerð er mikilvægari í málefnum miðborgarinnar en að tryggja aukna og sýnilega löggæslu. Staðan í þeim efnum er grafalvarleg ef marka má fréttatilkynningu sem fór frá skrifstofu borgarstjóra í gær.

Þar segir að "samkvæmt heimildum frá lögregluembættinu voru aðeins níu lögregluþjónar á vakt í miðborginni aðfaranótt 6. júlí sl. Tólf lögregluþjónar voru á vakt aðfaranótt 12. júlí og fjórtán aðfaranótt 13. júlí." Ekki verður annað sé en að þetta séu enn lægri tölur en Stefán Eiríksson lögreglustjóri hefur gefið upp í fjölmiðlum.

Ljóst er að miðað við þessa stöðu er ekki aðeins alls ófullnægjandi miðborgarvakt heldur má vera ljóst að viðvera sýnilegrar lögreglu um helgar í hverfum borgarinnar og nágrannasveitarfélaga er lítil sem engin. Löggæsla er grundvallar almannaþjónusta. Því hlýtur að verða að knýja á um skýr svör og tafarlausar úrbætur af hálfu dómsmálayfirvalda.

Þetta kemur fram í tölvupósti frá minnihlutanum í borgarstjórn sem barst Vísi fyrir stundu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×