Guðmundur Kristján Jónsson

Fréttamynd

Hildur sér heildar­myndina

Undir forystu Hildar Björnsdóttur hefur Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík einstakt tækifæri til að ganga í endurnýjun lífdaga og leiða nauðsynleg kynslóðaskipti við stjórn borgarinnar.

Skoðun
Fréttamynd

Borgin að baki heims­far­aldurs

Nóbelsverðlaunahafinn Paul Krugman er einn af fjölmörgum pistlahöfundum sem hefur gert framtíð borga að efnistökum í pistlaskrifum að undanförnu en víða má lesa dómsdagsspár um borgarsamfélög í ljósi heimsfaraldursins og tækniframfara sem gera fólki kleift að sinna störfum sínum óháð staðsetningu.

Skoðun
Fréttamynd

1 + 1 = 3

Áhrifamaður í skipulagi höfuðborgarsvæðisins á síðustu áratugum skrifaði grein í Kjarnann á dögunum þar sem hann lýsti efasemdum um áhrif fyrirhugaðrar Borgarlínu á umferðarmál í Reykjavík.

Skoðun
Fréttamynd

Leikur að lífum

Vandræði Volkswagen bílaframleiðandans hafa ekki farið framhjá neinum og umfjöllun um stjarnfræðilegar sektargreiðslur og hrókeringar í stjórnendastöðum tröllríða fjölmiðlum. Einn stærsti bílaframleiðandi í heimi riðar til falls með ófyrirséðum afleiðingum.

Bakþankar
Fréttamynd

Alveg rétt!

Margir kannast eflaust við tilfinninguna að vakna eftir að hafa verið úti á lífinu kvöldið áður og endað í partíi þar sem mátti reykja inni.

Bakþankar
Fréttamynd

Klassískur SDG

Það kemur væntanlega engum á óvart að í gríðarlangri og gildishlaðinni grein forsætisráðherra um skipulagsmál í Reykjavík skuli hann ekki víkja einu orði að núgildandi aðalskipulagi Reykjavíkur. Þess í stað viðheldur hann þráhyggju sinni fyrir fortíðinni og óttanum gagnvart framtíðinni og vísar í aðalskipulagið frá 1962 sem var réttilega alræmt svo hans eigið orð sé notað.

Bakþankar
Fréttamynd

Siðrof í Reykjavík

Á síðustu áratugum hefur myndast ákveðið siðrof á meðal fjölmargra kynslóða Íslendinga. Svo virðist sem stór hluti ökumanna í Reykjavík hafi ekki stigið niður fæti (nema á eldsneytisgjöf) á leið sinni á milli staða alla sína fullorðinsævi. Í huga þessa fólks er bíllinn æðsti samgöngumátinn og eðli málsins samkvæmt má ekkert hefta för hans. Af þessu hlýst að þegar þessir ökumenn þurfa að nema staðar til skamms tíma þá hika þeir ekki við að leggja þvert yfir göngu- og hjólastíga í stað þess að finna bílastæði eða stoppa úti á götu þar sem bíllinn á heima.

Bakþankar
Fréttamynd

Út með alla

Ég tek ekki mark á fólki nema það hafi búið erlendis,“ sagði kunningi minn eitt sinn. Fullyrðingin er djörf en það er engu að síður margt til í henni. Íslenskt samfélag verður líklega aldrei betra en hlutfall íbúanna sem hafa dvalið í lengri tíma í öðrum menningarheimum og upplifað sig sem sandkornin sem við Íslendingar, líkt og allar aðrar manneskjur, erum.

Bakþankar
Fréttamynd

Framtíðin er núna

Fjölmörg heillaskref hafa verið stigin í skipulagsmálum á síðustu dögum. Skýrsla Rögnunefndarinnar hefur alla burði til færa umræðu

Bakþankar
Fréttamynd

6-4 jafntefli

Forsætisráðherra varð tíðrætt um jafnrétti í ávarpi sínu á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn. Með vísan í alþjóðlega mælikvarða Sameinuðu þjóðanna færði hann okkur fagnaðarerindið, að Ísland væri nú orðið fyrirmynd í samfélagi þjóðanna, meðal annars vegna þess að kynjafnrétti væri hvergi meira.

Bakþankar
Fréttamynd

Baráttan um borgina

Lagið Aldrei fór ég suður trónaði vikum saman á toppum vinsældalista fyrir hartnær 20 árum enda yrkisefnið Íslendingum hugleikið þrátt fyrir að því fari fjarri að fólksflutningar af landsbyggðinni séu séríslenskt fyrirbæri.

Bakþankar
Fréttamynd

Samgöngumál eru kjaramál

Á Íslandi eyðir stór hluti fólks umtalsverðum hluta ráðstöfunartekna sinna í samgöngur. Í sumum tilfellum getur þessi kostnaður numið allt að 30% af tekjum fólks, einkum í tilfellum þeirra tekjulægstu.

Bakþankar
Fréttamynd

Hjálmlaus lífsstíll

Átakið Hjólað í vinnuna hófst með pompi og prakt í fyrradag. Líkt og um náttúrulögmál væri að ræða hófst strax umræða um hjálmleysi þátttakenda í stað þess að fjalla um hinn stórkostlega samfélagslega ávinning sem hlýst af auknum hjólreiðum.

Bakþankar
Fréttamynd

Skipulagsráðherra ríkisins

Forsætisráðherra ákvað á dögunum að sýna þjóðinni í verki af hverju honum tókst ekki að ljúka námi sínu í skipulagsfræðum við Oxford á sínum tíma.

Bakþankar
Fréttamynd

Ekkert að óttast

Hann er óttasleginn, borgarfulltrúinn og fyrrum bílasalinn sem hefur lýst sig andvígan nýsamþykktum breytingum á Grensásvegi sem miða að því að nútímavæða götuna. Að hans sögn er óvissan í tengslum við framkvæmdirnar mikil

Bakþankar
Fréttamynd

Vilt þú verða betri elskhugi?

Ætli éghafi ekki verið 12 ára þegar ég fékk fyrsta klámblaðið í hendurnar. Eftir það varð ekki aftur snúið og þegar ég fékk nær óheftan aðgang að internetinu á unglingsárum byrjaði ballið fyrir alvöru.

Bakþankar
Fréttamynd

Bananamenning

Ég hef haft vaxandi áhyggjur af góðum vini mínum síðustu árin. Ástæðan er neysla hans á banönum. Fyrsta bananans neytti hann á unglingsárum og þótti lítið til hans koma, bragðið var vont og hann átti erfitt með að venjast því. Þrátt fyrir það hélt hann áfram

Bakþankar
Fréttamynd

Forystusauður framtíðarinnar

Í nútímasamfélagi standa og falla þjóðir með öflugum borgarsamfélögum sem eru miðstöðvar stjórnsýslu, menntunar og menningar, auk þess að vera drifkraftur nýsköpunar og nýrra tækifæra. Það er því alltaf jafn sláandi að bera saman borgir heimsins og átta sig á því hve langt Reykjavík á í land til að geta talist samkeppnishæf borg á ótal sviðum.

Bakþankar
Fréttamynd

Plástur á svöðusár

Það var ánægjulegt að lesa fréttir í síðustu viku af ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar um að hafna tillögu um að smíða göngubrú yfir Hringbraut eða grafa göng undir götuna fyrir gangandi vegfarendur.

Bakþankar
Fréttamynd

Endurtekið efni

Á Íslandi eru ákveðnar fréttir sem birtast síendurtekið líkt og náttúrulögmál. Þetta eru fréttir á borð við að Baltasar Kormákur hafi mörg járn í eldinum og að tökur á víkingamyndinni hans séu við það að hefjast.

Bakþankar
Fréttamynd

Spyrjum að leikslokum

Það er vandlifað í Reykjavík um þessar mundir. Eftir efnahagshrunið hefur verið ládeyða í byggingariðnaði enda lítið um nýbyggingar á höfuðborgarsvæðinu síðustu misserin. Það þarf vart að fjölyrða um áhrifin sem lamaður byggingaiðnaður hefur á efnahag þjóðarinnar og ein af þeim leiðum sem stjórnvöld hafa gripið til að styrkja hann hefur verið að stórefla ferðamannaiðnað. Sú leið virðist hafa borið árangur og samkvæmt tölum frá Hagstofunni hefur gistinóttum í Reykjavík fjölgað ár frá ári og yfir háannatímann er skortur á gistiplássum í borginni.

Skoðun
Fréttamynd

Lokun Laugavegar, loftlagsbreytingar og lifandi miðbær

Björn Jón Bragason, talsmaður hóps kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg, ritaði grein í Fréttablaðið þann 28. mars síðastliðinn sem bar yfirskriftina Aðför borgaryfirvalda að Laugaveginum. Í greininni voru reifuð ýmis málefni sem beinast að fyrirhugaðri sumarlokun borgaryfirvalda á Laugaveginum fyrir bílaumferð. Meðal annars gagnrýnir Björn hækkun bílastæðagjalda í miðborginni og bendir á umræðu sem fram hefur farið í Bretlandi um að lækka bílastæðagjöld og fella niður gjaldskyldu við aðalverslunargötur landsins. Engin borgarheiti eru þó nefnd í því samhengi og leikur þeim er hér heldur á penna mikil forvitni á að vita hvaða framsýnu yfirvöld í Bretlandi hyggjast stuðla að aukinni umferð þar í landi. Björn leggur til að borgaryfirvöld í Reykjavík fylgi fordæmi ónefndra Breta og liðki fyrir akandi umferð í borginni með það að markmiði að tryggja lífsviðurværi hagsmunaaðila við Laugaveg.

Skoðun