Harmageddon

Fréttamynd

Gabríel með stjörnuhröp

Lagið Stjörnuhröp er komið út. Það er hugarfóstur dularfulls tónlistarmanns sem vill ekki gefa upp sitt rétta nafn. Hann hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi um árin en fetar nú nýjar slóðir undir listamannsnafninu Gabríel.

Harmageddon
Fréttamynd

Elektrótónlist með sprengjuleitarvélmenni Ríkislögreglustjóra

Elektró poppsveitin Sykur er ein heitasta hljómsveit landsins um þessar mundir. Lagið Reykjavík hefur slegið í gegn og fetar það í fótspor Viltu Dick? sem einnig naut mikilla vinsælda. Lagið er tekið af annarri plötu hennar, Mesópótamía, sem kom út fyrir síðustu jól við góðar undirtektir.

Harmageddon
Fréttamynd

Vantar þig sykur?

Hljómsveitin Sykur gaf út plötuna Mesópótamía í fyrra. Platan er ansi hressandi og það kæmi okkur á ritstjórn Poppsins ekki á óvart ef þú, lesandi góður, þráðir að eignast hana.

Harmageddon
Fréttamynd

Magnað myndband frá Úlfi úlfi

Hljómsveitin Úlfur úlfur sendi í vikunni frá sér magnað myndband við lagið Á meðan ég er ungur. Illusion kvikmyndagerðin vann myndbandið sem Arró leikstýrir.

Harmageddon
Fréttamynd

Ragnar Sólberg svitnaði og skalf

Þær óvæntu fréttir bárust í síðustu viku að Ragnar Sólberg hefði gengið til liðs við sænsku hljómsveitina Pain of Salvation, sem er nokkuð stór í sínum geira. Ragnar er á leiðinni í tónleikaferðalag með hljómsveitinni um Evrópu og er gríðarlega spenntur.

Harmageddon
Fréttamynd

Allt öðruvísi útrás hefst

Of Monsters and Men er heitasta hljómsveitin á Íslandi í dag. 2011 var annað starfsár hljómsveitarinnar, en þrátt fyrir það landaði hún útgáfusamningi við Universal, umboðsmanni og kórónaði árið með gullplötu fyrir sölu á fyrstu plötunni, My Head Is an Animal. Nú vinnur hljómsveitin að því að betrumbæta plötuna fyrir útrás sem á ekkert skylt við það sem við Íslendingar tengjum við það orð.

Harmageddon
Fréttamynd

Viltu fá plötu Of Monsters and Men?

Popp ætlar í samstarfi við Record Records að gefa nokkur eintök af plötunni My Head is an Animal í næstu viku. Til að þú eigir möguleika á því að fá eintak þarftu að fara á Facebook-síðu Poppsins, facebook.com/popptimarit, og læka síðuna. Ekkert meira. Þú þarft ekki að dreifa neinu eða tagga neitt. Þú þarft ekki einu sinni að segja vinum þínum frá þessu, þó það væri vissulega skemmtilegt ef þeir myndu taka þátt.

Harmageddon
Fréttamynd

Blóðugt myndband Diktu

Hljómsveitin Dikta vinnur nú að gerð myndbands við lagið Cycles. Helgi Jóhannsson leikstýrir myndbandinu, sem er ansi blóðugt, bardagakapparnir Sigurjón Viðar Svavarsson og Bjarni Kristjánsson úr Mjölni sjá um að lemja leikarana Alexander Briem og Kjartan Darra Kristjánsson.

Harmageddon
Fréttamynd

Ný lög á nýju ári

Árinu er að ljúka og Páll Óskar Hjálmtýsson, poppstjarna Íslands, er að klára að bóka það næsta. Árið hjá Páli Óskari endar eins og 2007 og 2008 reyndar líka: með roksölu á nýjustu plötunni og sinaskeiðabólgu eftir þúsundir eiginhandaráritana. Í þetta skipti er það tónleikaplatan Páll Óskar og Sinfó sem er rifin út úr verslunum.

Harmageddon
Fréttamynd

Langar þig í nýju Pallaplötuna?

Páll Óskar og Sinfó er örugglega stærsta verkefni sem poppkóngurinn Páll Óskar hefur tekið þátt í. Útgáfan er gríðarlega vegleg og pældu í að þú gætir eignast hana án þess að borga krónu fyrir.

Harmageddon
Fréttamynd

Reznor aftur tilnefndur til Golden Globe

Trent Reznor, sem er þekktastur fyrir hljómsveit sína Nine Inch Nails, hefur verið tilnefndur til Golden Globe-verðlauna fyrir tónlistina í kvikmyndinni The Girl with the Dragon Tattoo, eftir David Fincher.

Harmageddon
Fréttamynd

Föstudagurinn langi

Hljómsveitin Úlfur Úlfur sendir frá sér fyrstu plötuna sína á laugardaginn. Yrkisefni plötunnar er einlæg blanda af drykkju, partíi, ríðingum og öllu því.

Harmageddon
Fréttamynd

Rokkprófið: Jón Jónsson vs. Matti Matt

Söngvararnir Jón Jónsson og Matti Matt kljást í hinum klassíska bardaga, rokkprófinu. Hvenær voru þeir síðast handteknir? Hvað með óskilgetnu afkvæmin? Hvað er málið með Helga Björns?

Harmageddon
Fréttamynd

Við gerum það sem við gerum

HAM rankaði heldur betur við sér í sumar og sendi frá sér plötuna Svik, harmur og dauði. Platan hefur fengið frábæra dóma og tónleikar hljómsveitarinnar, þótt fáir séu, eru ávallt eins og í gamla daga: Troðfullir af sveittum aðdáendum.

Harmageddon
Fréttamynd

Kempur teknar inn í Frægðarhöllina

Hljómsveitirnar Guns N‘ Roses, Red Hot Chili Peppers og Beastie Boys eru á meðal þeirra sem teknar verða inn í Frægðarhöll rokksins á næsta ári. Athöfnin fer fram í Cleveland í Bandaríkjunum á næsta ári.

Harmageddon
Fréttamynd

Dreymir þig Svik, Harm og dauða?

HAM sendi frá sér plötuna Svik, harmur og dauði fyrr á þessu ári. Platan hefur fengið frábæra dóma, sem segir okkur að ef þú átt hana ekki nú þegar, þá dreymir þig um að eignast hana.

Harmageddon
Fréttamynd

Upptökur í búgarði gítarleikara Strokes

The Vaccines er ein af heitustu hljómsveitum Bretlands um þessar mundir. Hljómsveitin sendir frá sér lagið Tiger Blood á næstunni en gítarleikari The Strokes stýrði upptökum á laginu. Árni Hjörvar, bassaleikari hljómsveitarinnar, er ánægður með samstarfið.

Harmageddon
Fréttamynd

Engin pressa

Hljómsveitin Dikta hefur verið til í meira en áratug, en varð gríðarlega vinsæl fyrir tveimur árum. Þá sendi hún frá sér plötuna Get It Together og í kjölfarið byrjuðu lög á borð við Thank You og Just Getting Started að óma á flestum útvarpsstöðvum, pöbbum, félagsheimilum, leikskólum og elliheimilum landsins. Nú hefur hljómsveitin snúið aftur með nýja plötu í farteskinu.

Harmageddon
Fréttamynd

Viltu vinna nýju plötuna með Diktu?

Viltu freista þess að fá nýju plötuna með Diktu án þess að greiða fyrir hana krónu? Jú, öllum finnst gaman að fá gjafir og ef þú ferð inn á Facebook-síðu Popps, facebook.com/popptimarit, og smellir á "like“ er möguleiki á því að draumur þinn rætist.

Harmageddon
Fréttamynd

Morrissey kærir NME

Sérvitringurinn og snillingurinn Morrissey hefur kært tímaritið NME vegna viðtals sem lætur hann líta út fyrir að vera rasisti. Málið verður tekið fyrir hjá breskum dómstólum á næsta ári.

Harmageddon
Fréttamynd

Ný plata frá Lanegan

Mark Lanegan, sá mikli snillingur og söngvari hljómsveitarinnar sálugu Screaming Trees, sendir frá sér plötu í febrúar undir nafni Mark Lanegan Band.

Harmageddon