Harmageddon

Piparkökur á Gauknum

Megas, Gylfi Ægisson og Rúnar Þór Pétursson eru á meðal þeirra sem koma fram.
Megas, Gylfi Ægisson og Rúnar Þór Pétursson eru á meðal þeirra sem koma fram.
Fjölmargir tónlistarmenn koma fram á Gauki á Stöng á morgun, Þorláksmessu, í tilefni jólanna.

Vicky, Toggi, Ragnheiður Gröndal, Guðmundur Pétursson, Blússveit Þollýjar, Eldar og GRM (Gylfi Ægis, Rúnar Þór & Megas) leika tónlist af nýútkomnum plötum fyrir gesti, en fleiri listamenn munu bætast við dagskrána.

Jólaöl og piparkökur verða í boði og dagskráin hefst klukkan 17. Ekkert kostar inn á tónleikana, en börn yngri en 18 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.

Hægt verður að kaupa plötur beint af tónlistarfólkinu og fá gripina áritaða.








×