Ólafur Stephensen

Fréttamynd

Hverju breyta útlendir eigendur?

Umræðan um fjárfestingar útlendinga á Íslandi tekur á sig æ skrýtnari myndir. Nú hefur Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra beðið viðskiptaráðherra að láta kanna hvort óbeint eignarhald kínverskra fjárfesta í fyrirtækinu Stormur Seafood sé í samræmi við lög.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ósvífni ESB

Evrópusambandið og Noregur hafa nú í hótunum við Ísland og Færeyjar vegna ákvörðunar landanna um að skammta sér einhliða makrílkvóta. Það er gömul saga og ný að skeytin gangi á milli strandþjóðanna við Norður-Atlantshaf vegna deilna um veiðar úr sameiginlegum fiskistofnum. Þeir, sem setið hafa að veiðum úr stofnunum eins og ESB og Noregur hafa gert í þessu tilfelli, eru tregir til að viðurkenna rétt annarra til hlutdeildar í veiðunum þegar stofninn breytir hegðun sinni og neitar að halda sig þar sem hann er vanur, eins og makríllinn gerir nú. Að lokum munu menn þó verða knúnir til samninga.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kerfið drepur

Lýsing Samkeppniseftirlitsins á íslenzkum mjólkurmarkaði sem samansúrruðum samráðshring er raunsönn. Landbúnaðarkerfið gerir nú enn eina atlöguna að mönnum, sem vilja reyna að standa á eigin fótum og framleiða mjólkurvörur handa neytendum án ríkisstyrkja.

Fastir pennar
Fréttamynd

Eru fjárfestar velkomnir?

Það er með nokkrum ólíkindum að stjórnvöld í ríki, sem þarf eins nauðsynlega á erlendri fjárfestingu að halda og Ísland, skuli leggja jafnmikið á sig og raun ber vitni til að hrekja erlenda fjárfesta frá landinu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Völd án aðhalds

Samanburður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á skattbyrði á Íslandi og í öðrum aðildarríkjum OECD, sem fram kemur í margumræddri skýrslu sjóðsins um íslenzka skattkerfið, er allrar athygli verður.

Fastir pennar
Fréttamynd

Auðvelda leiðin

Skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um íslenzka skattkerfið hefur vakið nokkra athygli, enda er þar að finna að því er virðist róttækar tillögur um hærri skatta. Það er þó ekki þannig að AGS leggi til skattahækkanir að fyrra bragði. Það er ríkisstjórn Íslands, sem biður um skýrsluna og þar kemur skýrt fram að sé vilji til þess hjá íslenzkum stjórnvöldum að hækka skatta, megi fara þessa eða hina leiðina að því marki. Ríkisstjórnin getur því að sjálfsögðu ekki skotið sér á bak við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, ákveði hún að hækka skatta enn frekar. Hún ber ábyrgðina sjálf, rétt eins og á þeim skattahækkunum sem þegar hafa verið ákveðnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Líftæknistóriðja

Í laugardagsblaði Fréttablaðsins var rætt við Björn Lárus Örvar, forstjóra ORF líftækni. Hann sagði þar meðal annars að ORF gæti á skömmum tíma orðið stórfyrirtæki á íslenzkan mælikvarða. Starfsmönnum hefur á skömmum tíma fjölgað úr 20 í 40. Fyrirtækið er í samstarfi við erlenda fjárfesta, sem hafa trú á því og hafa lagt því til hundruð milljóna króna, á sama tíma og önnur íslenzk fyrirtæki þurfa að hafa mikið fyrir að laða að sér erlenda fjárfesta.

Fastir pennar
Fréttamynd

Gleymdu löndin

Fyrir jarðskjálftann mikla í janúar síðastliðnum var Haítí eitt af fátækustu og vanþróuðustu löndum heimsins. Þar skorti menntun, heilbrigðisþjónustu, vegi, brýr, húsnæði og löggæzlu svo eitthvað sé nefnt.

Fastir pennar
Fréttamynd

Veiki hlekkurinn?

Norðmönnum var illa brugðið í gær þegar sagt var frá því að þrír menn búsettir í Noregi, sem grunaðir eru um þátttöku í hryðjuverkasamtökunum Al Kaída, hefðu verið handteknir. Þeir eru grunaðir um að hafa unnið að skipulagningu sprengjutilræða í Noregi eða öðrum Evrópulöndum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hagstætt viðskiptaumhverfi?

Ísland er meðal þeirra ríkja OECD, sem leggja mest höft á erlenda fjárfestingu. Íslenzk fyrirtæki í alþjóðlegum rekstri eru í vaxandi mæli farin að horfa til þess að staðsetja höfuðstöðvar sínar annars staðar. Skattabreytingar, til dæmis álagning auðlegðarskatts og skattur á vaxtagreiðslur til erlendra aðila, koma illa við atvinnulífið. Gjaldmiðillinn er ónýtur, sem birtist meðal annars í gjaldeyrishöftum sem flækja verulega starfsemi fyrirtækja. Stjórnvöld virðast atvinnulífinu ekki sérlega vinsamleg og vilji þeirra til að styðja við bakið á því er óljós.

Fastir pennar
Fréttamynd

Atvinnusköpun stjórnmálamanna

Nýi borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík hefur ákveðið að setja fimm hundruð milljónir króna aukalega í átaksverkefni, sem eiga að skapa atvinnu. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir í Fréttablaðinu í gær að vonazt sé til að allt að 150 manns geti fengið vinnu til áramóta við þessi verkefni. Þau felast meðal annars í endurgerð göngu- og hjólaleiða og viðhaldi á húsum í eigu borgarinnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Eftir hverju er að bíða?

Einn fylgifiskur sumarsins og ferðamannavertíðarinnar eru árvissar fréttir um að nú séu ekki til nógir peningar til að tryggja landvörzlu við hina eða þessa náttúruperluna. Engir peningar séu heldur til fyrir stígagerð eða skiltum. Ferðamenn troði niður viðkvæman gróður, fari sjálfum sér að voða og svo framvegis.

Fastir pennar
Fréttamynd

Skýrir hagsmunir og óskýrir

Í umræðum um dóm Hæstaréttar um gengistryggðu lánin og tilmæli eftirlitsstofnana um að miðað verði við seðlabankavexti á lánunum, er málinu gjarnan stillt þannig upp að það snúist um hagsmuni lánþega annars vegar og hagsmuni fjármagnseigenda og erlendra kröfuhafa hins vegar. Þeir síðarnefndu muni tapa, ef samningsvextirnir einir verði látnir standa.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fresta sköttum og skera meira

Fréttablaðið sagði frá því í gær að tekjur ríkisins á síðasta ári hefðu verið 40 milljörðum króna yfir áætlun. Tekjuskattur hefði skilað mun meiru en áætlað var vegna minni tekjusamdráttar í samfélaginu en gert var ráð fyrir og jafnframt hefði atvinnnuleysið ekki orðið jafnmikið og menn óttuðust.

Fastir pennar
Fréttamynd

Betri aðskilnaður

Flokksstjórn Samfylkingarinnar ályktaði á fundi sínum um síðustu helgi að ráðherrar flokksins ættu að segja sig tímabundið frá þingmennsku og gera það sem fyrst. „Með því sýna ráðherrar Samfylkingarinnar í verki þann ásetning flokksins að styrkja beri stöðu Alþingis og skerpa á aðskilnaði þess gagnvart framkvæmdarvaldinu,“ sagði í ályktun flokksstjórnarinnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Enn þarf Hæstiréttur að úrskurða

Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið telja sig vera að gegna skyldu sinni, að gæta stöðugleika fjármálakerfisins, með útgáfu tilmæla til fjármálastofnana í gær um útreikning gengistryggðu lánanna, sem Hæstiréttur hafði dæmt að færu í bága við lög.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tími ákvarðana

Fréttablaðið sagði frá því á mánudaginn að ofbeldi gegn lögreglumönnum færi vaxandi og yrði sífellt grófara. Árið 2008 hlutu 29 lögregluþjónar varanlegan skaða vegna ofbeldis, sem þeir urðu fyrir við skyldustörf. Í fyrra voru þeir 38.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fyrirgefning og samstaða

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sló nýjan tón í umræðum um kirkjuna og samkynhneigða í samtali við Fréttablaðið á laugardaginn. Biskup hefur greinilega kosið að horfast í augu við þann yfirgnæfandi stuðning sem ein hjúskaparlög fyrir samkynhneigða jafnt sem gagnkynhneigða hafa meðal þjóðarinnar - og þar með á meðal þjóðkirkjufólks. Hann hefur því ákveðið að setja punkt aftan við neikvæða eða hálfvolga afstöðu kirkjunnar manna gagnvart hjónabandi samkynhneigðra og taka vel á móti samkynhneigðu fólki, sem kýs að ganga upp að altarinu og þiggja hjónavígslu af prestum þjóðkirkjunnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Dyrum lokað

Sjálfstæðisflokkurinn hefur þrengri skírskotun en áður eftir landsfundinn um helgina. Drögum að stjórnmála­ályktun, þar sem örlítil rifa var skilin eftir í þá veru að láta reyna á umsókn um aðild að Evrópusambandinu, var hafnað og samþykkt ályktun þar sem dyrunum er skellt í lás og þess krafizt að aðildarumsóknin verði dregin til baka. Sjálfstæðisflokkurinn hefur með þessu öðlazt sérstöðu meðal stórra evrópskra hægriflokka, sem flestir hafa beitt sér fyrir ESB-aðild undir merkjum frjálsra viðskipta og vestræns samstarfs.

Fastir pennar
Fréttamynd

Minnisþjálfun

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram frumvarp á Alþingi, þar sem lagt er til að þingsköpum verði breytt þannig að ringulreiðin, sem ævinlega tekur völd undir lok þingtímans, verði úr sögunni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvatning til úrbóta

Það var þarft framtak hjá Háskóla Íslands að gera könnun meðal stúdenta og spyrja hvernig þeir telji framhaldsskólann hafa búið þá undir háskólanám. Kallað hefur verið eftir slíkum könnunum talsvert lengi, enda er opinbert leyndarmál að fólk kemur ákaflega misvel undirbúið til háskólanáms og í háskólunum hafa menn talið sig greina verulegan mun eftir framhaldsskólum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hrunið og Evrópa

Flokksstofnanir þriggja stærstu stjórnmálaflokka þjóðarinnar funda um komandi helgi. Þetta eru fyrstu fundirnir af því tagi, sem haldnir eru eftir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kom út og eftir að haldnar voru sveitarstjórnarkosningar, þar sem allir fjórir hefðbundnu flokkarnir fengu skell. Þetta eru tengd mál; slök útkoma gömlu flokkanna í kosningunum skrifast meðal annars á þá útreið sem hið pólitíska kerfi fékk í rannsóknarskýrslunni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sjúkdómseinkenni

Dómur Hæstaréttar, um að óheimilt sé að binda lán í íslenzkum krónum við gengi erlendra gjaldmiðla, hefur í raun enn aukið á óvissuna um stöðu skuldara. Enn gæti þurft að leita atbeina dómstólanna til að fá úr því skorið hvað gerist næst; hvort þeir sem tóku myntkörfu­lánin eru skyndilega miklu betur settir en aðrir skuldarar, eftir að hafa verið verst settir, eða hvort leyft verði að binda lánin við vísitölu eða þá hækka á þeim vextina og miða við lægstu óverðtryggða vexti.

Fastir pennar
Fréttamynd

Umræða á grunni staðreynda

Samþykkt Evrópusambandsins um að hefja aðildarviðræður við Ísland þýðir ekki að Ísland verði aðildarríki ESB. Það ræðst ekki fyrr en þjóðin greiðir atkvæði um aðildarsamning. En ákvörðunin er vendipunktur að því leyti að nú er aðildarferlið formlega hafið og þá er vonandi hægt að færa Evrópuumræðuna á Íslandi á grunn staðreynda.

Fastir pennar
Fréttamynd

Bótanískt útlendingahatur

Það er miður júní og breiður af bláum blómum gleðja augað víða um land. Hæðir og holt í nágrenni höfuðborgarinnar, þar sem áður voru uppblásin moldarbörð, eru blá yfir að líta; einstaklega falleg sjón í sumarblíðunni að undanförnu. Lúpínan setur svip sinn á landið, klæðir það með þykku teppi þar sem áður var enginn, lítill eða rytjulegur gróður.

Fastir pennar
Fréttamynd

Afnám umdeildra vatnalaga

Á fundi iðnaðarnefndar Alþingis í morgun var afgreitt frumvarp iðnaðarráðherra um afnám hinna umdeildu vatnalaga frá 2006. Það var niðurstaða meirihluta nefndarinnar, fulltrúa Samfylkingarinnar, VG og Hreyfingarinnar að nema bæri lögin úr gildi en fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks lögðu til að gildistöku laganna yrði enn frestað, nú í þriðja sinn.

Skoðun
Fréttamynd

Afnám mismununar

Gærdagurinn var merkisdagur í sögu mannréttindabaráttu á Íslandi. Alþingi samþykkti frumvarp um að ein hjúskaparlög gildi fyrir samkynhneigða og gagnkynhneigða. Hjónaband samkynhneigðra para verður ekki lengur sett í annan flokk og kallað staðfest samvist; það heitir nú hjónaband að lögum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Virðing Alþingis

Engin leið hefur verið að sjá nokkur merki þess á Alþingi undanfarna daga að gömlu stjórnmálaflokkarnir fjórir séu nýkomnir úr sveitarstjórnarkosningum þar sem þeir fengu skell allir sem einn. Kjósendur reyndust ginnkeyptir fyrir nýjungum, jafnvel þótt þær væru settar fram undir merkjum gríns fremur en alvöru. Gestkomandi gætu reyndar haldið að gömlu flokkarnir hefðu brugðizt við með því að setja á svið gamanleikrit á þjóðþinginu, en vanir kjósendur vita að það er því miður sami lélegi farsinn og í fyrra - og árið þar áður.

Fastir pennar
Fréttamynd

Í skjóli Kína?

Gjaldeyrisskiptasamningur seðlabanka Íslands og Kína, sem undirritaður var í gær, markar að ýmsu leyti tímamót. Slíkir samningar hafa ekki verið gerðir við erlenda seðlabanka frá því fyrir hrun. Seðlabankar Bandaríkjanna og Evrópu hafa til að mynda hafnað slíku.

Fastir pennar
Fréttamynd

Dugar frysting launa til?

Grein Árna Páls Árnasonar, félags- og tryggingamálaráðherra, hér í Fréttablaðinu í gær hefur vakið mikla athygli og viðbrögð. Ráðherrann velti þar fyrir sér leiðum til að ná fram bráðnauðsynlegum niðurskurði í ríkisrekstrinum á næstu árum og telur nauðsynlegt að ná þjóðarsátt um að frysta laun opinberra starfsmanna næstu þrjú árin, ásamt lífeyrisgreiðslum og öðrum afkomutengdum greiðslum ríkisins, til dæmis til bænda.

Fastir pennar