Viðtöl

Fréttamynd

Þetta er ekki tímabil sem ég er stoltur af

Nick Leeson komst á spjöld sögunnar árið 1995 þegar hann gerði einn elsta og virðulegasta banka Bretlands gjaldþrota með áhættusömum gjaldeyrisviðskiptum. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson spjallaði við þennan alræmdasta verðbréfamiðlara í heimi um spákaupmennsku á gjaldeyrismarkaði og lífið eftir gjaldþrot bankans. Leeson kemur hingað til lands eftir viku og ræðir um reynslu sína.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Starfa reynslunni ríkari í tærum sjó

Tæknifyrirtækið Industria sem vakið hefur heimsathygli fyrir hugbúnaðarlausnir sínar hefur vaxið hratt síðustu ár og hyggur á enn frekari vöxt og útrás á nýja markaði. Óli Kristján Ármannsson ræddi við Guðjón Má Guðjónsson, stofnanda og framkvæmdastjóra fyrirtækisins, um stöðu þess og framtíð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tók kennslu og einkalíf fram yfir fyrirtækið

Allen Michel, prófessor við Boston-háskóla í Bandaríkjunum, var staddur hér á landi fyrir helgi sem gestakennari í fjármálum fyrirtækja við MBA-námið í Háskólanum í Reykjavík. Óli Kristján Ármannsson hitti prófessorinn milli kennslustunda í hádeginu síðasta föstudag og forvitnaðist um hagi hans, störf og viðhorf.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Leiðandi í lyfjadreifingu

Um síðustu áramót varð innflutnings- og dreifingarfyrirtækið Distica til við skiptingu Vistor hf. í tvö félög. Gylfi Rútsson, framkvæmdastjóri félagsins, sagði Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur frá áætlunum um aukna hlutdeild félagsins í dreifingu lyfja og annarrar vöru fyrir heilbrigðisgeirann.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Eskimo færir út kvíarnar

Tilraunaframleiðsla á fatnaði er hafin hjá Eskimo og fyrirætlanir um markaðssetningu á heimsvísu. Ásta Kristjánsdóttir, stofnandi fyrirtækisins og einn stjórnenda, segir Óla Kristjáni Ármannssyni hvert Eskimo stefnir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Selur Íslendingum sælkerafæði

Muriel Léglise bjó í Lúxemborg um síðustu aldamót og starfaði hjá Evrópuráðinu. Þar deildi hún íbúð með tveimur íslenskum stelpum og varð þeim vel til vina. Þessar vinkonur hennar voru hvatinn að því að hún heimsótti Ísland. Að eigin sögn fékk hún svo góða tilfinningu fyrir landinu að hún var flutt hingað með allt sitt hafurtask innan við ári síðar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Framtíðin björt að refsingu afstaðinni

Eftir uppstokkun og endurskipulagningu er Teymi til í slaginn í hörðu samkeppnisumhverfi íslenskra fjarskipta- og upplýsingatæknifyrirtækja. Óli Kristján Ármannsson hitti Árna Pétur Jónsson, forstjóra Teymis, að máli í höfuðstöðvum félagsins í Skútuvogi í

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Pfaff snýr aftur til uppruna síns

Pfaff-Borgarljós hefur breytt um nafn og heitir nú aftur Pfaff eins og fyrirtækið hét allt frá stofnun árið 1929 fram til ársins 2002. Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri og einn af eigendum Pfaff, sagði Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur sögu eins elsta fjölskyldufyrirtækis landsins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Forstjóri Dressmann klæðist bara Batistini

„Gengurðu sjálfur í Batistini?“ var fyrsta spurningin sem hrökk af vörum blaðakonu þegar hún hitti forstjóra Dressmann. Vörumerkið verður enda að eilífu greypt í huga hennar, eins og annarra sem hafa séð Dressmann-auglýsingarnar, þar sem ofursvalir miðaldra súkkulaðimenn ganga öruggir um í Batistini-jakkafötum. „Aldrei í öðru,“ segir hann og flettir jakkanum frá því til sönnunar.

Viðskipti innlent