
Verbúðin er því sem næst heilagur sannleikur
Eins og þjóðin komst að í gærkvöldi sprakk allt í loft upp í Verbúðinni. Handalögmál milli tveggja aðalpersóna í þætti sjálfs Hemma Gunn – hið persónulega drama þáttanna er að nálgast hápunkt sinn í 5. þætti af átta. Eins og vera ber ef horft er til byggingar í leikverkum Grikkjanna; ris, hvörf og kennsl – Kaþarsis.

Vinnubrögð sem enginn ætti að sjá
Þórarinn Eldjárn er tvímælalaust einhver ástsælasti höfundur þjóðarinnar. Rithöfundarferill hans fer að teygja sig upp í fimmtíu árin og í ár, á fjörutíu ára afmæli fyrsta smásagnasafns hans, Ofsögum sagt, gefur hann út sitt áttunda smásagnasafn, Umfjöllun.

Konur eru áhugasamari um glæpi en karlar
Eva Björg Ægisdóttir er næsta stórstjarna á sviði íslenskrar glæpasagnagerðar. Nýr krimmi hennar, Þú sérð mig ekki, er glæsilega ofinn og nýstárleg saga innan þess ramma sem skilgreinir glæpasöguna.

Það er svo margt galið á Íslandi
Þorgrímur Þráinsson er einn vinsælasti rithöfundur þjóðarinnar. Honum blöskrar aðgerðarleysið gagnvart þeim vanda sem blasir við ólæsi ungmenna og telur kerfið drepa allt í dróma. Í þessu höfundatali er einnig tekið á hinni heitu kartöflu sem eru listamannalaunin.

„Ósjaldan sem siðblindan lætur á sér kræla“
Rannveig Borg Sigurðardóttir er lögfræðingur sem býr og starfar í Sviss en hún hefur verið að vekja athygli hér á landi undanfarnar vikur fyrir sína fyrstu skáldsögu, Fíkn en bókin hefur verið að fá rífandi góðar viðtökur sérstaklega á hljóðbókaveitunni Storytel.

„Þetta ferli kenndi mér að láta vaða“
„Erum við ekki flest rithöfundar inn við beinið?“ segir fjölmiðlamaðurinn og körfuboltaþjálfarinn Kjartan Atli Kjartansson sem var að gefa út sína fyrstu barna- og unglingabók, Saman í liði.

Með óaðfinnanlega hnýtta þverslaufu á Kvíabryggju
Vinjettuhöfundurinn Ármann Reynisson á að baki einstakt lífshlaup. Í þessu höfundatali segir hann meðal annars af dvölinni á Kvíabryggju en þar var hann eins og hvítur hrafn. Þá kemur hann inn á þá útskúfun sem hann telur sig hafa mátt sæta af hálfu þeirra sem tilheyra menningarelítunni.

Ólafur Ragnar vonar að samferðafólki á æskuárum bregði ekki við nýja bók hans
Ólafur Ragnar Grímsson vonar að samferðafólki hans verði ekki brugðið við lestur nýrrar bókar hans um æskuárini fyrir vestan og í þingholtunum í Reykjavík sem kom út í dag. Þetta er önnur bók hans á innan við ári samhliða því sem hann undirbjó Hringborð norðurslóða fyrr í þessum mánuði.

Einlægnin er aldrei einföld
Dagur Hjartarson skáld og rithöfundur er að senda frá sér nýja vísindaskáldsögu sem heitir Ljósagangur. Hún er aðeins gefin út í 69 eintökum og það sem ekki selst í kvöld verður brennt á báli.

Býður ekki upp á vellíðunarnasl fyrir hræddar sálir
Guðni Elísson prófessor í bókmenntafræði hefur sent frá sér skáldsögu og því er haldið fram hér fullum fetum að um stórtíðindi sé að ræða. Bókin er doðrantur, 800 síður og marglaga. Um leið og þetta er algjör veisla fyrir bókmenntafræðinga; þaulhugsuð bygging og ótal skírskotanir til bókmenntasögunnar er hún eins og Nafn Rósarinnar eftir Umberto Eco spennusaga á yfirborðinu.

Þingmaður sendir frá sér bók um eldgosið
Kolbeinn Óttarsson Proppé er að senda frá sér um þessar mundir bók um eldgos og fjallar þar meðal annars um það gos sem nú er yfirstandandi í Geldingadölum á Reykjanesi – sem er reyndar kjördæmi þar sem Kolbeinn ætlar sér að sækja fram í.

Hannes segir Sjálfstæðisflokkinn ekki góðan en hinir séu bara svo miklu verri
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor hefur sent frá sér mikinn doðrant, Twenty-Four Conservative-Liberal Thinkers, rituð á ensku en það er New Direction-forlagið sem gefur bókina út.

Taldi hugmyndina fráleita en hitti svo Jón Ásgeir
Einar Kárason rithöfundur hefur sent frá sér mikla bók, Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, en þar er farið yfir einstakan feril athafnamannsins sem lenti í fordæmalausum málaferlum í tengslum við viðskipti sín og rekstur.

Með óbilandi trú á sér og slétt sama um álit annarra
„Formlegt samstarf fyrir bókina byrjaði fyrir tæpum tveimur árum síðan, skrifin það er að segja, en við Silja höfum unnið saman í alls konar verkefnum,“ segir Alda Karen Hjaltalín.

Dularfulli skiltalistamaðurinn er Sigurjón Sighvatsson
Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi stígur nú fram sem sjálfstæður listamaður eftir áratugi „bak við tjöldin“ sem framleiðandi. Hann segist vera með eilítinn sviðsskrekk.

Erótísk skáldsaga með grafískum kynferðislegum lýsingum
„Það er búið að vera draumur hjá mér í mörg ár að skrifa skáldsögu en efnið var lengi að koma til mín. Sennilega er þetta búið að gerjast í einhvern tíma í undirmeðvitundinni. Loksins settist ég niður og ákvað að það væri áskorun að dansa aðeins á línunni og skrifa erótískar senur inn í söguna og draga þar ekkert undan,“ segir Fanney Sif Gísladóttir í samtali við Makamál.

„Ég hef alveg sleppt jólaþrifum og jólin voru alls ekki síðri“
„Það er alltaf auðvelt að segja að það sé best að vera tímanlega að öllu en það er í rauninni lykillinn að góðu skipulagi að vera tímanlega að fara yfir það sem á eftir að gera,“ segir Sólrún Diego um jólaskipulagið sitt.

„Eins og að vera meinlaus einræðisherra í mjög litlu landi“
„Mig langaði sjálfri að fara til Grísafjarðar en átti ekki fyrir því svo ég byrjaði að skrifa sögu um fólk sem fer þangað,“ segir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir um barnabókina Grísafjörður, sem hún gaf út fyrir jólin.

Fyrsti karlinn í fjölskyldunni sem hefur ekki átt mótorhjól
Ein er sú bók í jólabókaflóðinu sem áhugafólk um bókmenntir ætti alls ekki að láta fram hjá sér fara: Dauði skógar eftir Jónas Reyni Gunnarsson.

Látast vera boðberar frelsisins en vilja bara græða peninga
Ólafur Jóhann Ólafsson hefur sent frá sér sitt besta verk. Snerting heitir skáldsagan. Hér verður gerð heiðarleg tilraun til að komast að því hvers vegna bókin er svona vel heppnuð.