
Ástin á götunni

Besta ár landsliðanna
Karla- og kvennalandslið Íslands í fóbolta náðu samanlagt í tuttugu stig í níu keppnisleikjum á árinu 2015 og þetta er besta keppnisár landsliðanna þegar litið er á samanlagðan hlutfallsárangur beggja A-landsliðanna.

Þessir spila gegn Katar í Tyrklandi
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari íslenska U-21 árs landsliðsins, tilkynnti í kvöld hvaða leikmenn myndi spila vináttulandsleik gegn Katar í janúar.

Sjáðu mörkin níu þegar Stjarnan valtaði yfir KR
Sextán ára gamall Stjörnumaður skoraði þrennu í úrslitaleik Bose-mótsins.

Gylfi og Sara knattspyrnufólk ársins 2015
Gylfi Þór Sigurðsson og Sara Björk Gunnarsdóttir hafa verið útnefnd knattspyrnufólk ársins 2015 af leikmannavali KSÍ.

FH vann Fjölni í Bose-bikarnum | Sjáðu mörkin
Íslandsmeistararnir skoruðu þrjú falleg mörk í öruggum sigri á Fjölni.

Færeyska silfurliðið vill fá Óla Þórðar sem þjálfara
Ólafur Þórðarson er maðurinn sem NSÍ Runavík vill fá sem þjálfara en hann glímir enn við veikindi.

Blómlegt barna- og unglingastarf Breiðabliks vekur athygli erlendra liða | Myndband
Barna- og unglingastarfið hjá Breiðabliki er í miklum blóma en 1500 krakkar æfa fótbolta hjá Kópavogsliðinu.

Lars Lagerbäck gefur KSÍ svar í febrúar | „Við verðum bara bíða og vona," segir Geir
Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands kíkti um borð í Akraborgina á X-inu í dag og ræddi við Hjört Hjartarson um Evrópumót landsliða í fótbolta og framtíð landsliðsþjálfarans Lars Lagerbäck.

Dæmdu síðast hjá Manchester United og Arsenal en nú hjá Chelsea
Íslenskir dómarar halda áfram að dæma hjá unglingaliðum stóru klúbbanna en nú hefur Gunnar Jarl Jónsson fengið flott verkefni í vikunni.

Eiður Smári lék seinni hálfleikinn í markalausu jafntefli
Eiður Smári Guðjohnsen lék seinni hálfleikinn í markalausu jafntefli Blika gegn Víking í Bose-mótinu í dag en hann æfir þessa dagana með Blikum.

Guðjón Þórðar, Atli Eðvalds og Óli Þórðar á óskalista næstbesta liðsins í Færeyjum
Guðjón Þórðarson, Atli Eðvaldsson og Ólafur Þórðarson koma allir til greina sem næsti þjálfari hjá færeyska úrvalsdeildarliðinu NSÍ frá Runavík sem er í þjálfaraleit og er með Íslandsvininn Jens Martin Knudsen sem einn af starfsmönnum sínum.

Svíar upp fyrir Ísland á FIFA-listanum
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta dettur niður um fimm sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gerður var opinber í morgun.

Treyja Hólmfríðar seldist á 1,8 milljónir: Ég táraðist
Hólmfríður Magnúsdóttir segir að söfnunin fyrir Kolfinnu Rán sé það besta sem hún hefur gert um ævina.

Katrín: Auðveld ákvörðun því þjálfarinn ætlaði að setja mig á bekkinn
Katrín Ómarsdóttir er búin að finna sér nýtt félagslið og langar meira en allt aftur í landsliðið.

Ingólfur skiptir í Fram
Heldur um kyrrt í 1. deildinni eftir að hafa farið upp með Víkingi Ólafsvík í haust.

Jón Daði spilaði flesta landsleiki á árinu 2015
Jón Daði Böðvarsson kom við sögu í tapinu á móti Slóvakíu í gærkvöldi en þetta var ellefti og síðasti landsleikur karlalandsliðsins í fótbolta á árinu 2015.

Stjarnan og Fjölnir skildu jöfn í sex marka leik | Sjáðu mörkin
Hilmar Árni Halldórsson skoraði eftir 37 sekúndur í Stjörnutreyjunni.

Ísland gæti lent í riðli með Englandi, Ítalíu og Danmörku á EM
Það styttist óðum í það þegar kemur í ljós með hvaða þremur þjóðum Ísland lendir í riðli í úrslitakeppni Evrópumótsins í Frakkalandi næsta sumar.

Gunnleifur skaut þeim ungu ref fyrir rass
Sjáðu fimm stjörnur úr Pepsi-deildinni hita upp fyrir Bose-mótið með sláarkeppni.

Verða einhver Balotelli-tilþrif hjá íslenska landsliðinu í Varsjá í kvöld?
Íslenska knattspyrnulandsliðið mætir Póllandi í vináttulandsleik í kvöld en leikurinn fer fram á þjóðarleikvangi Pólverja, Stadion Narodowy. Frægasti leikurinn á vellinum fór fram í úrslitakeppni Evrópumótsins fyrir þremur og hálfu ári.

Strákarnir spila í Abu Dhabi í janúar
Karlalandsliðið í fótbolta fer til Sameinuðu arabísku furstadæmanna og spilar vináttuleik eins og það gerði í byrjun árs 2014.

Aron Einar: Við erum ekki besta lið heims en við berjumst fyrir hvern annan
Landsliðsfyrirliðinn segir skipulag og baráttugleði íslenska karlalandsliðsins í fótbolta skila því langt.

Lars léttur í Varsjá: Aron Einar er stundum til vandræða
Strákarnir okkar mæta Póllandi í vináttulandsleik annað kvöld.

Keflavík vill fá Jónas Guðna heim: „Hann er sætasta stelpan á ballinu“
Miðjumaðurinn öflugi er laus allra mála frá KR og uppeldisfélagið vill fá hann heim í Bítlabæinn.

Heimir: Vinnum áfram í grunninum en notum tækifærið og skoðum nýja menn
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Robert Lewandowski og félögum frá Póllandi í vináttuleik á föstudaginn.

Messan: Átti að velja Frederik Schram í landsliðið?
Strákarnir í Messunni duttu í smá landsliðsspjall í gær.

Hlynur Atli snýr aftur í Fram
Zeljko Óskar Sankovic um leið ráðinn yfirmaður afreksþjálfunar knattspyrnudeildar Fram.

Jóhann Berg getur spilað á föstudag
KSÍ tilkynnti í dag að Jóhann Berg Guðmundsson yrði með landsliðinu í komandi vináttulandsleikjum.

Gunnar Þorsteinsson kominn heim í Grindavík
Miðjumaðurinn ungi sem spilað hefur með ÍBV undanfarin ár er kominn aftur á Suðurnesin.

Landsliðshópurinn skiptist í tvo hópa
Níu leikmenn fá nú tækifæri til að sýna sig og sanna með landsliðinu í æfingaleikjum gegn Póllandi og Slóvakíu en ungur leikmannahópur var valinn í gær.