Skoðanir

Fréttamynd

Í tilefni árlegrar vinnuverndarviku

Evrópska vinnuverndarstofnunin stendur árlega fyrir vinnuverndarviku þar sem Evrópuþjóðir sameinast í átaki til að vekja athygli á þessum mikilvæga málaflokki. Markmiðið er að bæta öryggi á vinnustöðum og gera þá heilsusamlegri. Starfshópur skipaður fulltrúum atvinnulífsins og Vinnueftirlitsins sér um framkvæmd vinnuverndarvikunnar hér á landi.

Skoðun
Fréttamynd

Siðmennt en ekki Kárahnjúkar

Sagt hefur verið í mín eyru að það komi úr hörðustu átt þegar ég vilji að almennt gildi það um mál sem fyrir Alþingi eru lögð, að þau komi til atkvæðagreiðslu. Fyrr á árum hafi ég iðulega gengið hart fram í því að koma í veg fyrir einmitt þetta með langri og stundum óbilgjarnri umræðu í þingsal.

Skoðun
Fréttamynd

Launamisréttið burt – vilji er allt sem þarf

Á kvennaári Sameinuðu þjóðanna árið 1975 ákváðu kvennasamtök á Íslandi að sýna fram á hve mikilvægt vinnuframlag kvenna væri fyrir samfélagið allt. Ákveðið var að leggja niður störf á degi Sameinuðu þjóðanna 24. október og safna konum saman um allt land. Þátttaka var gríðarleg og samfélagið nánast lamaðist. Íslenskar konur urðu heimsfrægar fyrir samstöðu og öflugar aðgerðir.

Skoðun
Fréttamynd

Tækifæri til sátta

Sáttatónn var í talsmönnum jafnt stjórnar sem stjórnarandstöðu þegar niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um síðustu helgi voru ræddar á Alþingi í gær, þótt talsverður munur sé á því hvernig menn túlka þær. Báðar fylkingar á þinginu töluðu fyrir vandaðri málsmeðferð og að leitazt yrði við að afgreiða tillögur til breytinga á stjórnarskrá í eins mikilli sátt og unnt væri.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að deyja úr kulda

Fyrir ekki svo löngu rakst ég á gamlan félaga minn að austan. Leiðir höfðu skilið fyrir margt löngu en ég kallaði til hans í léttum tón eins og ég var vanur. Það var á þeim nótunum að ef hann gerði ekkert í sínum málum þá dræpi hann sig á þessu helvítis fylleríi alltaf hreint. "Sömuleiðis, helvítis Stöddarinn þinn,“ var svarið. Hann hló við – en við vissum báðir hvað klukkan sló. Við áttum síðan gott spjall áður en við kvöddumst. Auðvitað ætluðum við að hittast aftur fljótlega, þó við vissum báðir að það stæði í rauninni ekki til. Einhverjum vikum seinna varð hann úti. Hann lagðist til svefns á víðavangi og dó úr kulda.

Bakþankar
Fréttamynd

Nú verða verkin að tala

Kvennafrídagurinn 24. október hefur hér á landi að miklu leyti verið helgaður baráttunni fyrir réttindum kvenna á vinnumarkaði og fyrir jöfnum aðgangi kynjanna að valdastofnunum samfélagsins. Á Íslandi getum við verið þakklát fyrir góðan árangur í þessari baráttu, sem aldrei hefði náðst nema vegna þess að krafan um jafnrétti nýtur mikils stuðnings og er borin uppi af öflugri grasrót.

Skoðun
Fréttamynd

Ást er allt í kringum okkur

Mín fyrsta minning um Kiirtan var þegar ég sá þetta orð skrifað stórum stöfum á krítartöflu í Menntaskólanum við Hamrahlíð, og nemendur boðnir velkomnir. Mér skildist að sá sem stýrði þessu væri karlmaður með gítar og sítt hár, og fannst þetta allt heldur furðulegt. Á sama tíma vissi ég fátt meira heillandi en harða rokkara með sítt hár sem sungu um dauða og djöful. Þetta Kiirtan virtist samt eitthvað einum of.

Bakþankar
Fréttamynd

Eina lífsvon alþingismanna

Grundvöllur að öllu mannlegu samstarfi og samskiptum er traust, hvort heldur er í fjölskyldu og hjónabandi, fyrirtæki, stofnunum eða samfélaginu sjálfu. Í samfélaginu er mikilsverðast af öllu að almenningur geti borið traust til grundvallarstofnana ríkisins; Alþingis, framkvæmdarvaldsins og dómstólanna.

Skoðun
Fréttamynd

Flökkuhugsun

Ég þakka grein Valgarðs Guðjónssonar í helgarblaði Fréttablaðsins. Þar viðurkennir hann að það sem hann í Silfri Egils kallaði „flökkusögu“ um að Mannréttindadómstóll Evrópu álíti það ekki brot á mannréttindum að eitt trúfélag hafi sérstöðu gagnvart ríkisvaldinu umfram önnur, er ekki flökkusaga heldur staðreynd.

Skoðun
Fréttamynd

Stefnum áfram en verum hvorki tapsár né sigurglöð

Þjóðaratkvæðagreiðslan um stjórnarskrármálið er afstaðin. Þá hefst illu heilli hið íslenska karp um hver sigraði og hver tapaði. Sumir berja sér á brjóst og segja sinn málstað hafa sigrað, jafnvel sinn flokk, eða eru tapsárir og vilja ekki una þeim skilaboðum sem felast í úrslitum kosninganna. Mál er að slíku linni.

Skoðun
Fréttamynd

Hausverkur tveggja ráðherra

Nú er ég hræddur um að ráðherrar fjár- og velferðarmála séu með dynjandi hausverk. Föstudaginn 12.10.12 sendi ég stutta ádrepu þar sem spurt var hvort ætlunin væri að berja höfðinu áfram við steininn og halda til streitu orðalagi í skýringartexta við fjárlagalið 08-206 í Fjárlögum 2013. Þegar þetta er skrifað hafa engin svör borist.

Skoðun
Fréttamynd

Afbökun sannleikans

Er hægt að fjalla um sína "upplifun“ af atburði án þess að vera viðstaddur? Geir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, virðist vera fær um slíkt ef marka má erindi hans í Valhöll þann 16. október. Ýmis ummæli hans í því erindi vekja furðu, en ekki síst þau sem hann lét falla um "árásina“ á Alþingi 8. desember 2008, þar sem um þrjátíu manns gerðu tilraun til að fara á þingpalla Alþingis. Níu úr þeim hópi voru í kjölfarið ákærð fyrir brot á 100. grein hegningarlaga (valdarán) og áttu yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Öll ákærðu voru sýknuð og telur Geir að almenningsálitið hafi haft áhrif á dómarana í málinu.

Skoðun
Fréttamynd

Friðsemd í náttúru Íslands

Starf friðsemdar í náttúru Íslands snýst oft um að bjarga verðmætum undan eyðileggingarmætti græðgi og heimsku. Hún þarf sífellt að forða gersemum frá eyðileggingu, hindra, stöðva eða afla fylgis, afhjúpa og opna augu annarra. Tími og orka friðsemdar fer í björgunarstarf en miklu meira býr í henni – aðeins ef fólk gæfi henni tækifæri til að blómstra.

Skoðun
Fréttamynd

Stjórnarskráin – gröfum stríðsexina

Þátttaka, og niðurstöður, atkvæðagreiðslunnar um stjórnarskrána um helgina komu mörgum þægilega á óvart. Þátttakan var miklu meiri en a.m.k. flestir áttu fyrir fram von á. Skilaboðin til Alþingis voru skýr. Í fyrsta lagi tók fast að helmingur atkvæðisbærra manna þátt í atkvæðagreiðslunni.

Skoðun
Fréttamynd

Fullorðnir og ADHD

Töluverð umræða hefur myndast um þessa greiningu hjá fullorðnum eftir að nýtt fjárlagafrumvarp leit dagsins ljós, en þar kom fram að greiðsluþátttöku í slíkum lyfjum yrði hætt hjá fullorðnum. Þetta hefur nú verið leiðrétt og dregið til baka, voru þetta víst mistök í fyrstu útgáfu frumvarpsins. Ekki liggur þó endanlega fyrir hvernig greiðslum verður háttað. Það hefur komið fram að þessi lyf eru dýr og einnig að Íslendingar virðist nota meira af þeim en aðrir, en alþjóðaráð Sameinuðu þjóðanna gagnrýndi Íslendinga árið 2011 vegna mikillar notkunar Rítalíns.

Fastir pennar
Fréttamynd

Íslandsbanki illa flæktur í hugmyndastuld?

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hefur á bankaþingum lofað markaðsherferð Ergo í bak og fyrir. Verst er að hún skuli ekki á sama tíma halda þeirri skoðun á lofti að markaðsherferðin eigi rætur sínar að rekja til stolinnar hugmyndavinnu. Nefnilega hugmyndavinnu sem undirritaður lagði bankanum til fyrir nokkrum árum – hugmyndavinnu sem Birna rannsakaði ofan í kjölinn ásamt sínu nánasta samstarfsfólki.

Skoðun
Fréttamynd

Opið bréf til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar

Ég var að lesa grein þína sem birtist í dagblaði eiginkonu þinnar þann 1. september sl. Þar tekur þú undir þau sjónarmið Víglundar Þorsteinssonar að Arion banki hafi sett saman "aftökulista“. Af einhverjum ástæðum hafi bankinn ákveðið að "taka“ af þér og fjölskyldu þinni Haga-verslunarveldið og mismunað ykkur herfilega þar sem þið áttuð hæsta tilboð, eins og þú fullyrðir, og þið hafið verið algerlega sniðgengin.

Skoðun
Fréttamynd

Rétt meðhöndlun gaskúta tryggir öryggi

Í ljósi umfjöllunar síðustu daga um hættuna sem stafað getur af gaskútum langar mig til að benda á þá staðreynd að þrátt fyrir mikla fjölgun gaseldavéla á heimilum landsmanna eru afar fá dæmi um að hættuástand skapist vegna gass. Þar er rétt meðhöndlun á gasi lykilatriði og sem betur fer fara flestir þá leið að fá fagmenn til að setja slíkan eldunarbúnað upp og tengja. Til eru fyrirtæki sem sérhæfa sig í uppsetningu og þjónustu við gas og tryggja þannig réttan frágang á leiðslum og öðrum nauðsynlegum öryggisbúnaði.

Skoðun
Fréttamynd

230 lítrar af ógn

Ég get ekki beðið eftir að ganga í Evrópusambandið. Mér er alveg sama um myntsamstarf og álitaefni sem varða sjávarútveg og landbúnað – ég er bara svo spenntur að fylgjast með fólki rogast með sprengfull koffort af rauðvíni um flugvelli í útlöndum og heyra svo vodkaflöskurnar rúlla hverja á eftir annarri úr bakpokunum í handfarangursrýminu á leið yfir hafið.

Bakþankar
Fréttamynd

Gjald er ekki refsing

Mér er ekki sérstaklega illa við að borga fyrir hluti. Þess vegna fer það í taugarnar á mér þegar menn geta ekki rætt um eðlilega verðlagningu á þjónustu öðruvísi en á þeim forsendum að verið sé að "refsa fólki“. Ég vil ekki "refsa fólki“ fyrir að leggja bílnum niðri í miðbæ, ég vil bara að fólk borgi fyrir það. Ég vil heldur ekki "refsa fólki“ fyrir að taka strætó, þótt ég vildi ég gjarnan sjá fólk borga meira fyrir það. Ég er raunar sannfærður um að það myndi gera strætó betri.

Fastir pennar
Fréttamynd

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Ég ætla að nota tækifærið og lofa Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, af því enginn annar virðist gera það, og þá sér í lagi forsvarsmenn hennar sem hafa hreinlega ekki sést svo mánuðum skiptir opinberlega. Hvað þá að fagfólkið stígi fram og verjist þeirri ádeilu sem er nær stöðug á þjónustu heilsugæslunnar eða á fyrirkomulagi hennar. Þeir sem mig þekkja vita að ég er eindreginn stuðningsmaður einkarekstrar í heilbrigðisþjónustu þar sem ég starfa og tel að þar liggi stærstu sóknarfærin í framtíðinni. Þrátt fyrir það þykir mér sorglegt hið neikvæða umtal um þessa grunnstoð í heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Hver fréttin á fætur annarri um langan biðtíma, lélegan aðbúnað, atgervisflótta lækna og yfirvofandi hættuástand auk rifrildis fagstétta um það hverjum beri að skrifa út pilluna eða ekki er það sem birtist okkur í fjölmiðlum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Forsetinn sem fékk flugu í höfuðið

Forsetinn hefur verið gagnrýndur fyrir að vera óhefðbundinn. Fyrir að fara bókstaflega eftir stjórnarskránni frekar en að fylgja hefðum og venjum við beitingu forsetavaldsins. Margir fræðimenn hafa gert sitjandi forseta upp einræðishvatir. En hvað ef forseti Íslands fengi, t.d. við heilablóðfall, þá flugu í höfuðið að taka sér eins mikil völd og hann kæmist upp með? Hve langt gæti hann gengið samkvæmt gildandi stjórnarskrá?

Skoðun
Fréttamynd

Baráttan gegn atvinnuleysi er flókið samspil

Atvinnuleysi hefur góðu heilli farið ört lækkandi síðustu mánuði og raunar hraðar en útlit var fyrir í byrjun ársins. Atvinnuleysið varð mest árin 2009 og 2010, 8-8,1% en fór niður í 7,4% árið 2011. Í ár 2012 stefnir í að hlutfallið verði nálægt 5,7% en talsverð óvissa er með þróun atvinnuleysis næstu ár. Þar ræður þróun efnahagsmála vitaskuld mestu og hvernig uppbyggingu atvinnulífsins verður hagað. Bjartsýnar spár gera ráð fyrir að atvinnuleysi muni lækka áfram og verði að öllum líkindum nálægt 4% á árunum 2013 og 2014.

Skoðun
Fréttamynd

Þriðja heimsstyrjöldin

Það hefur vart farið fram hjá neinum að úfar eru með þjóðum um allan heim, ýmist vegna viðskiptahagsmuna, landamerkja eða hugmyndafræði. Engum dylst heift og misklíð milli trúarhópa. Áhugi þjóða á norðurheimskautasvæðinu er umtalsverður bæði vegna siglinga og auðæfa sem leynast kunna á hafsbotni. Kínverjar reyna að hasla sér völl á Grænlandi og þar hefur þeim orðið nokkuð ágengt. Áhugi Kínverja á Íslandi er öllum augljós.

Skoðun
Fréttamynd

Ferðaþjónusta snýst um fleira en peninga!

Það eru yfirleitt tvær aðferðir sem menn nota þegar verið er að leggja af stað i fjárfestingu í ferðaþjónustu. Önnur leiðin, sem alloft er notuð, er að hella sér bara af stað með frábæra hugmynd, keyra verkefnið af stað með hugsjónina eina að vopni og trúa á að finna fjármuni til að verkefnið gangi upp, þ.e. að þetta reddist bara og vissulega gerist það stundum. Hin aðferðin, oftar notuð, er að leggjast í alvöru undirbúningsvinnu, rannsóknir og viðskiptaáætlun til að sjá hvort það sé yfirleitt eitthvert vit í hugmyndinni góðu. En þrátt fyrir góðan undirbúning fara þau áform stundum algjörlega í vaskinn og þá sitja margir sárir eftir.

Skoðun
Fréttamynd

LSH með bestu sérfræðinga heims í talnalækningum?

Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, sérfræðingur í almennum lyflækningum, heimilislækningum og heilbrigðisstjórnun, ritaði fróðlega grein um það hvernig laun forstjóra hans endurspegla hlutverk eins af lykilstjórnendum heilbrigðiskerfisins. Lesendum er bent á að meta mikilvægi áhrifaríkrar stjórnunar í heilbrigðiskerfinu í samhengi við þróun heilbrigðismála í framtíðinni og í framhaldi af því endurskipulagningu heilbrigðisþjónustu erlendis. Það sem kemur ekki fram í grein Ófeigs eru breytingar sem gerðar hafa verið á heilbrigðisþjónustu landsmanna. Þessar breytingar fela í sér að aðlaga heilbrigðiskerfið að starfsemi háskólasjúkrahúss.

Skoðun
Fréttamynd

Frelsi og sjálfræði – eða bergmál frá miðöldum

Undir lok átjándu aldar gerðu bandarískir þrælar uppreisn gegn kúgurum sínum og vildu frelsi. Kúgararnir vildu reyndar líka frelsi, frelsi frá alríkinu bandaríska til að halda þræla. Þess vegna var þetta réttnefnt frelsisstríð. Uppreisninni lauk með sigri þrælanna og annarra sem skildu frelsishugsjónina þeirra skilningi. Þetta var vorið í Norður-Ameríku. Þessir vindar bárust einnig til Frakklands og þar var gerð bylting undir yfirskriftinni „frelsi, jafnrétti og bræðralag“. Vorið var komið til Evrópu. Það gerði reyndar hret, mörg hret og frelsið reyndist síður en svo auðfengið.

Skoðun
Fréttamynd

Já en – við þjóðkirkjuákvæði

Með grein hér í Fréttablaðinu fyrir nokkru (18. sept.) mælti ég með að kjósendur í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu svöruðu spurningunni "vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi?“ með já-i.

Skoðun
Fréttamynd

Fræðsla fyrir alla

Oft höfum við ásatrúarfólk fengið skömm í hattinn hjá nýjum félögum um leið og þeir ganga í félagið. Þeir setjast gjarna fyrir framan okkur með alvöruþunga í svipnum og spyrja hvernig í ósköpunum standi á því að þeir hafi aldrei verið fræddir um heiðinn sið og félagið, eða boðið að vera með.

Skoðun
Fréttamynd

Hagstjórnarmistök að lækka skuldir?

Í liðinni viku komst leiðarahöfundur Fréttablaðsins svo skemmtilega að orði að það væru hagstjórnarmistök að lækka skuldir íslenskra heimila. Þá hélt hann því einnig fram að slík aðgerð kostaði ríkissjóð alltof mikið án þess að leggja fram nokkra útreikninga fyrir þeirri fullyrðingu.

Skoðun