
Lög og regla

Allt ónýtt í Nóatúni
Eldur kviknaði rétt eftir miðnætti í verslun Nóatúns í JL-húsinu í gærnótt. Allt er eyðilagt í versluninni en engin slys voru á fólki. Talið er að eldur hafi kviknað í kringum kjötborð verslunarinnar. Starfsfólk þarf ekki að hafa áhyggjur af starfi sínu.
Fíkniefni fundust
Húsleit var framkvæmd í íbúðarhúsnæði á Akranesi á föstudagskvöld. Að sögn lögreglunnar á Akranesi lék grunur á að fíkniefni væru þar innandyra.
Bílvelta við Eyrarhlíð
Bifreið valt um hádegisbilið á laugardag við Eyrarhlíð í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði.
Brá hníf að hálsi sínum
Tilkynning barst til lögreglunnar í Reykjavík klukkan 02.15 aðfaranótt laugardags um mann sem brotið hafði rúðu í versluninni Ég og þú á Laugavegi 48.

Útiloka ekki íkveikju
Lögreglurannsókn vegna brunans á Sauðarkróki um síðustu helgi þar sem ungur maður lést hefur litlu skilað enn sem komið er. Björn Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, segir að beðið sé eftir niðurstöðum úr sýnatöku tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík.
Bílveltur
Flutt með sjúkrabíl Kona, ökumaður bíls, slasaðist við bílveltu á Suðurlandsvegi á móts við bæinn Mæri. Hún var flutt ásamt farþega með sjúkrabíl á heilsugæslustöðina á Selfossi.

Dæmdur í 15 mánaða fangelsi
Maður á þrítugsaldri var í gær dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot, tilraun til fjársvika og fjársvik, þjófnað, hylmingar og vopnalagabrot. Það var Héraðsdómur Reykjaness sem kvað upp dóminn.
Ríkislögreglustjóri rannsakar
Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík fór vestur í Saurbæjarhrepp í Dölum í gær til að rannsaka vettvang atviks sem varð þar í fyrradag. Þá eyðilagði maður lögreglubíl með hjólaskóflu þegar gert var hjá honum fjárnám og einnig leikur grunur á að hann hafi reynt að kveika í íbúðarhúsi sínu.

Eftirlit með ræktunarhundum
Þetta er meðal breytinga á reglum um hundahald í Reykjavík, sem samþykktar hafa verið hjá Umhverfis og heilbrigðisnefnd.

Falsaði skuldabréf í fangelsi
Hæstiréttur hefur staðfest tveggja og hálfs árs fangelsi yfir Þórhalli Ölveri Gunnlaugssyni fyrir skjalafals. Fölsunin átti sér stað inni á Litla-Hrauni en hann situr inni fyrir morð. Bréfin falsaði hann með nafni þess sem hann myrti.

Með réttarstöðu grunaðs manns
Ungur maður hefur fengið réttarstöðu grunaðs manns vegna lögreglurannsóknar á eldsvoðanum á Sauðárkróki á laugardag þar sem einn maður fórst. Hann er talinn hafa verið í húsinu þegar eldurinn kom upp og var sótugur á vettvangi þegar lögregla kom að, en ber við minnisleysi vegna ölvunar.

Miltisbrandssýkt hross brennd
Hræ fjögurra hrossa sem greindust með miltisbrand við eyðibýlið Sjónarhól á Vatnsleysuströnd voru brennd í gær. Tíu manns hafa fengið læknismeðferð vegna hugsanlegrar miltisbrandssýkingar. Guðrún Sigmundsdóttir, yfirlæknir á sóttvarnarsviði Landlæknis, segir fólkið ekki vera veikt en það fái sýklalyf í skamman tíma sem fyrirbyggjandi meðferð.

Þrír í tveggja ára fangelsi
Hæstiréttur staðfesti tveggja ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir þremur mönnum sem kveiktu í íbúðarhúsi í Laugardal í júlí á síðasta ári. Húsráðendur, maður og kona, voru inni í íbúðinni þegar kveikt var í.

Fór ekki niður af svölum hússins
Maður sem komst út úr brennandi húsi við Bárustíg á Sauðárkróki á laugardag hefur fengið réttarstöðu grunaðs manns. Björn Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, segir manninn ekki grunaðan um að hafa kveikt í húsinu enda liggi eldsupptök ekki fyrir.

Velti lögreglubíl með hjólaskóflu
Maður gjöreyðilagði lögreglubíl með hjólaskóflu og er grunaður um að hafa reynt að kveikja í íbúðarhúsi sínu í Saurbæjarhreppi í Dölum um klukkan tvö í gær. Sýslumaður, lögmaður og lögregla voru stödd á bænum vegna uppboðs sem halda átti á eigninni. Ekki varð manntjón vegna berserksgangs mannsins.

Hæstiréttur staðfesti fangelsisdóm
Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja ára fangelsisdóm yfir þremur mönnum fyrir að hafa kveikt í húsi við Suðurlandsbraut í Reykjavík í fyrrasumar og stefnt lífi þriggja íbúa í hættu. Mennirnir kveiktu í húsinu eftir að einn þeirra sparkaði gat á útidyrahurð og hellti þar inn tíu lítrum af bensíni.
Lét greipar sópa á Laugavegi
Þjófur lét greipar sópa í glugga úra- og skartgripaverslunar við Laugaveg undir morgun og komst undan með þýfið. Nágranni við götuna heyrði brothljóðin og lét lögreglu þegar vita, auk þess sem þjófavarnarkerfi fór í gang, en þrátt fyrir að lögreglan væri snögg á staðinn var þjófurinn horfinn með feng sinn þegar hún kom að. Þjófurinn er ófundinn.
Á batavegi eftir hálkuslys
Ung kona sem datt í hálku við bæ í Hrunamannahreppi í fyrrakvöld, og var flutt meðvitundarlaus með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild í Fossvogi, er á batavegi.
Sýknaður af netaveiði
Maður hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Norðurlands eystra af ákæru um brot á lax- og silungsveiði. Hann var ákærður fyrir að hafa lagt net í Ólafsfjarðarvatn um tuttugu metra frá ósi Fjarðarár.
Reykskynjari bjargar fjölskyldu
Reykskynjari vakti fimm manna fjölskyldu á Vopnafirði í gær. Eldur logaði í kertaskreytingu í stofunni. Fjölskyldan náði að slökkva eldinn með vatni.

Borgin kærð fyrir jafnréttisbrot
Reykjavíkurborg verður kærð til kærunefndar jafnréttismála vegna ráðningar í stöðu sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs. Fulltrúar Reykjavíkurlistans samþykktu á fundi borgarráðs fyrir skömmu að ráða Svanhildi Konráðsdóttur, fyrrverandi forstöðumann höfuðborgarstofu. Tíu af þrettán framkvæmdastjórum borgarinnar eru konur.

Dæmdur fyrir tvær líkamsárásir
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmlega þrítugan mann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir tvær líkamsárásir. Þá var maðurinn einnig dæmdur til greiðslu 260 þúsund króna sektar og ökuleyfissviptingar í þrjú fyrir að keyra ítrekað undir áhrifum áfengis.</font />

Nauðganir vopn í stríðsátökum
Friðargæsluliðar og starfsmenn hjálparsamtaka sem ráðnir eru til að vernda almenna borgara hafa misnotað stúlkur og konur sem þeir áttu að vernda, segir meðal annars í nýútkominni skýrslu Amnesty International. Samtökin standa nú fyrir herferð til að stöðva ofbeldi gegn konum.

Yfir 20 manns geta höfðað mál
Yfir tuttugu manns eru taldir hafa nægileg gögn í höndunum til að höfða mál á hendur olíufélögunum fyrir að hafa greitt of mikið fyrir eldsneyti undanfarin ár, þegar olíufélögin höfðu með sér samráð um verðið. Neytendasamtökin ætla að styðja málsóknir fólksins, ef til kemur, en hver og einn mun sækja sitt mál.
Lést í eldsvoða á Sauðárkróki
Maðurinn sem lést í eldsvoðanum á Sauðarkróki á laugardag hét Elvar Fannar Þorvaldsson, fæddur 18. júní árið 1983. Elvar var til heimilis að Hólavegi 24 og að Bárustíg 14 á Sauðárkróki. Hann var ókvæntur og barnlaus.

Vitnisburður breyttist fyrir dómi
Börkur Birgisson neitar nær öllum sakargiftum í málatilbúnaði á hendur honum. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa reynt að drepa mann með öxi á veitingastaðnum A. Hansen í ágúst síðastliðnum. Hann játar á sig brot á vopnalögum.
Stakk mann með skærum
Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir tvær líkmasárásir og frelsissviptingu í október í fyrra. Hann sótti annan mann í vinnuna og fór með hann nauðugan í bíl, dró hann á hárinu út úr bílnum, sparkaði ítrekað í höfuð hans og stakk hann með skærum. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Einn handtekinn
Einn maður var handtekinn í fyrrakvöld vegna húsbrots í Fossvogi í síðustu viku. Hann gaf sig ekki fram til skýrslutöku og brá lögreglan þá á það ráð að handtaka manninn. Hann gisti í fangageymslu lögreglunnar yfir nótt.
Fór á Vog eftir yfirheyrslur
Ungi maðurinn, sem framdi rán í tveimur söluturnum í Vesturborginni með skömmu millibili í fyrrakvöld og var handtekinn með þýfið á sér, fór í vímuefnameðferð á Vog að yfirheyrslum loknum í gærkvöldi. Hann hafði einmitt útskrifað sig sjálfur þaðan í fyrrakvöld, skömmu áður en hann framdi ránin.

Ökumaðurinn líklega fundinn
Lögreglan í Keflavík telur sig vera búna að finna manninn sem ók niður konu í Sandgerði fyrir tæpri viku og stakk af. Konan var á leið heim til sín að loknum vinnudegi þegar ekið var á hana á Strandgötu. Hún slasaðist talsvert, var rænulítil þegar að var komið og var hún flutt á slysadeild Landspítalans og síðan lögð inn á spítalann.