Erlent

Myndir frá sjúkrabeði Castro
Kúbanska ríkisdagblaðið Granma birti í dag myndir af Fidel Castro, forseta landsins, þar sem hann sem bróðir hans Raul og Hugo Chavez, forseti Venesúela heimsóttu hann á sjúkrabeði hans. Myndirnar, sem eru sjö talsins, voru birtar á vefsíðu blaðsins.

Flóttamenn halda heim
Líbanskir flóttamenn héldu margir hverjir til síns heima í dag þegar vopnahlé í átökum Ísraela og Hizbollah-skæruliða tók gildi. Þeir vonast til að geta haldið lífi sínu áfram þar sem frá var horfið áður en árásir Ísraela á Líbanon hófust fyrir rúmum fjórum vikum.
Sprengjutilræði í Pakistan á þjóðhátíðardegi
Tveir létust og níu særðust þegar sprengjur sprungu á tveimur stöðu í Suðvestur-Pakistan í dag. Sú fyrri sprakk við sölubás í bænum Hub þar sem verið var að selja pakistanska fánann í tilefni af þjóðhátíðardegi Pakistana og þar létust tveir og sex særðust.

Reglur um handfarangur rýmkaðar í Bretlandi
Yfirvöld í Bretlandi hafa lækkað viðbúnaðarstig í landinu vegna hryðjuverkahættu úr hættuástandi í viðbragðsstig. Um leið hafa reglur um handfarangur farþega í flugvélum verið rýmkaðar.

Hjálpargögn farin að berast til S-Líbanons
Hjálpargögn eru farin að berast til Suður-Líbanons, nokkrum klukkustundum eftir að vopnahlé milli Ísraels og Líbanons tók gildi. Ekki geta þó allir íbúar á svæðinu snúið til síns heima strax og hjá mörgum virðist að fáu að hverfa.

Olíuverð lækkar í kjölfar vopnahlés
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði um rúman Bandaríkjadal á helstu mörkuðum í dag í kjölfar vopnahlés Ísraels og Hizbollah-skæruliða, sem tók gildi klukkan fimm í morgun að íslenskum tíma.

Mikill hagvöxtur á evrusvæðinu
Hagvöxtur jókst um 0,9 prósent á evrusvæðinu á öðrum fjórðungi ársins, samkvæmt útreikningum Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins (ESB). Þetta jafngildir 2,4 prósenta hagvexti á árs grundvelli og hefur hann ekki verið meiri síðastliðin fimm ár.

Stærsta farsímafyrirtæki heims í Kína
Sætaskipti hafa orðið á stærstu farsímafyrirtækjum í heimi. Breska farsímafyrirtækið Og Vodafone, sem fram til þessa hefur vermt fyrsta sætið, hefur nú vikið fyrir kínverska keppinautinum China Mobile.

Öflug sprenging í Kolombó í morgun
Sjö létust og sautján særðust í árás á öryggissveitir sem fylgdu pakistönskum sendiráðssbíl í Kolombó á Srí Lanka í morgun. Svo virðist sem sprengju hafi verið komið fyrir á veginum og sprakk hún þegar bílalestin ók hjá.

Yfir tvö hundruð látnir eftir fellibyl í Kína
Yfir tvö hundruð manns hafa látist í Kína síðustu daga af völdum fellibylsins Saiomai. Fellibylurinn er sá sterkasti sem gengið hefur á land í Kína í hálfa öld og hefur hann eyðilagt tugþúsundir húsa og skemmt uppskeru á stóru svæðu.

Viðbúnaðarstig lækkað í Bretlandi
Yfirvöld í Bretlandi hafa lækkað viðbúnaðarstig í landinu vegna hryðjuverkahættu úr hættuástandi í viðbragðsstig. Hættuástand hefur verið í gildi frá því á fimmtudag þegar greint var frá því að tekist hefði að koma í veg fyrir að hryðjuverkamenn sprengdu nokkrar flugvélar á leið yfir Atlantshafið í loft upp.

Vopnahlé milli Ísraels og Hizbollah-skæruliða
Vopnahlé milli Ísraels og Hizbollah-skæruliða tók gildi klukkan fimm í morgun að íslenskum tíma. Ísraelsher hélt áfram árásum á skotmörk í Líbanon allt fram á síðustu stundu.

Öryggið orðið óþægilega mikið
Verða vopnaðir verðir helstu ferðafélagar okkar í framtíðinni? Nýjar ógnir í loftferðum gera það að verkum að óþægindi ferðalanga hafa aukist til muna, sérstaklega í ferðum sem tengjast Bretlandi og Bandaríkjunum. Erfitt er að segja til um hversu lengi svo verði í pottinn búið, en nú þegar heyrast óánægjuraddir.

Ísraelar samþykkja að gera hlé á hernaðaraðgerðum
Ríkisstjórn Ísraels samþykkti í gær tillögu um hlé á hernaðaraðgerðum í Líbanon. Vopnahléið tók gildi klukkan fimm í nótt að íslenskum tíma. Þrátt fyrir vopnahlé er talið líklegt að átök í Líbanon haldi áfram.

Hryðjuverkaógn lamar flug í London
Þriðjungi áætlunarflugs frá Heathrow flugvelli í London var aflýst á sunnudag vegna öngþveitis við öryggisleit.

Vædderen lagður af stað
Danska varðskipið Vædderen, sem breytt hefur verið í vísindaleiðangursskip, lagði fyrir helgi upp frá Kaupmannahöfn í hnattsiglingarleiðangurinn Galathea 3.
Norsk vegabréf á vergangi
Norðmenn hafa týnt 95 þúsund vegabréfum síðan Noregur hóf þátttöku í Schengen-samstarfinu, kom fram á fréttasíðu norska blaðsins Aftenposten á fimmtudag.

Ljósmyndari rekinn frá Reuters
Reuters-fréttastofan hefur slitið öll tengsl við ljósmyndarann Adnan Hajj í Beirút, sem varð uppvís að því að breyta tveimur ljósmyndum frá átökunum í Líbanon. Reuters hefur eytt öllum 920 myndum ljósmyndarans úr gagnagrunni sínum.

Dánartala hækkar
Dánartala þeirra sem létust eftir að fellibylurinn Saomai skall á Kína á fimmtudag hækkaði á sunnudag upp í 134 og er 163 saknað. Sum fórnarlambanna létust þegar skýli sem þau höfðu leitað í hrundu.

Bráðnar hraðar en talið var
Ísinn á Grænlandi bráðnar enn hraðar en áður hafði verið talið. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsókna sem bandarískir vísindamenn hafa gert á grundvelli gerfihnattaljósmynda frá bandarísku geimferðastofnuninni, NASA, og birtar eru í nýjasta heftir vísindatímaritsins Science.

Halda áfram að sprengja
Ísraelsstjórn segist geta haldið áfram að varpa sprengjum á hisbolla skæruliða í suðurhluta Líbanons, þrátt fyrir vopnahléð sem Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt og stjórnin sjálf féllst á í hádeginu í dag.

Stríðinu ekki lokið
Bretar munu líklega búa við langvarandi og alvarlega hryðjuverkaógn að sögn innanríkisráðherranum. Hann segir að þó orrustan hafi líklega unnist þá sé stríðið ekki á enda.

Tafir á breskum flugvöllum
Flugfélög í Bretlandi segja að umferð um breska flugvelli sé í uppnámi vegna nýrra öryggisreglna. Flugfélögin segja að fyrirtækið sem rekur flugvellina - BAA - hafi ekki fjárfest nægilega í öryggisbúnaði og því einkenni hægagangur og tafir alla starfsemi flughafna.

Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt vopnahlésályktun um átökin í Líbanon. Leiðtogi Hizbollah segist ætla að virða vopnahléið fari Ísraelar frá Líbanon. Ísraelar sækja fram af auknum krafti í S-Líbanon.
Ísraelar sækja fram í Líbanon
Ísraelar hafa þrefaldað liðsstyrk sinn í Suður-Líbanon, þrátt fyrir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi á fundi sínum í nótt samþykkt áætlun um vopnahlé.
Tónlistarmenn ferðast með lest
Nýjar reglur um handfarangur í flugvélum neyða tónlistarmenn eins frægasta balletts Rússlands, Bolshoi-ballettsins, til að ferðast með lest frá Rússlandi til Bretlands vegna fyrirhugaðrar sýningar á Svanavatninu í Konunglega óperuhúsinu í London næstkomandi laugardag.