Guðbjartur Hannesson

Fréttamynd

Ekki missa af þessu!

Með okkar augum hóf göngu sína í Ríkissjónvarpinu síðastliðinn mánudag. Ég fylgdist spenntur með enda nýmæli á ferð í íslenskri dagskrárgerð. Við stjórnvölinn er fólk með þroskahömlun sem fjallar um málefni líðandi stundar með sínum augum og opnar þar sýn sem alla jafna stendur sjónvarpsáhorfendum ekki til boða. Efnistök fyrsta þáttar voru í sjálfu sér ekki framandi. Saman fóru stuttar fréttaskýringar í bland við léttara efni og framsetningin kunnugleg úr hefðbundnum magasínþáttum. Til umfjöllunar voru málefni sem miklu varða í lífi fólks með fötlun en einnig atriði sem eru jafnt á áhugasviði fatlaðs fólks sem ófatlaðs og varða okkur öll í stóru og smáu.

Skoðun
Fréttamynd

Jafnrétti og mannréttindi í allra þágu

Hefð er fyrir því að helga 19. júní umræðu um jafnrétti kynjanna. Þann dag fyrir 96 árum öðluðust konur á Íslandi kosningarrétt en reyndar með þeim fráleitu takmörkunum að rétturinn tók aðeins til kvenna sem voru fjörutíu ára og eldri.

Skoðun
Fréttamynd

Átta milljarðar til hækkunar lífeyris og bóta í velferðarkerfinu

Stjórnvöld hafa ákveðið að verja rúmum átta milljörðum króna á þessu ári til að hækka bætur almannatrygginga og atvinnuleysisbætur. Þetta er í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að lífeyrisþegar og atvinnuleitendur skuli njóta hliðstæðra kjarabóta og samið hefur verið um á almennum vinnumarkaði. Fyrir átta milljarða króna er unnt að bæta umtalsvert kjör þeirra sem minnst hafa og draga úr fátækt. Það er markmiðið með þessum aðgerðum stjórnvalda þar sem hækkanir verða mestar hjá þeim tekjulægstu í hópi lífeyris- og bótaþega.

Skoðun
Fréttamynd

Tóbakslausi dagurinn

Þriðjudagurinn 31. maí er árlegur alþjóðadagur án tóbaks. Á Íslandi var í fyrsta sinn haldinn reyklaus dagur 23. janúar árið 1979 og öðru sinni árið 1982. Árið 1987 ákvað Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin að 31. maí ár hvert skyldi helgaður baráttu gegn

Skoðun
Fréttamynd

30 milljónir til atvinnumála kvenna

Árið 1991 var í fyrsta sinn úthlutað sérstökum styrkjum til atvinnumála kvenna að frumkvæði Jóhönnu Sigurðardóttur þáverandi félagsmálaráðherra. Síðan þá hafa þessir styrkir verið veittir árlega af hálfu félagsmálaráðuneytisins, nú velferðarráðuneytisins.

Skoðun
Fréttamynd

Alþjóðaheilbrigðisdagurinn

Hinn sjöunda apríl hvert ár heldur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) stofndag sinn hátíðlegan með því að vekja athygli á tilteknu þýðingarmiklu heilbrigðismáli.

Skoðun
Fréttamynd

Mikilvægur leiðarvísir

Neysluviðmið fyrir íslensk heimili hafa verið kynnt ásamt skýrslu sérfræðinga um verkefnið. Skýrslan og viðmiðin marka tímamót enda hafa margir beðið þess lengi að stjórnvöld legðu fram slíkar

Skoðun
Fréttamynd

Krabbamein snertir allar fjölskyldur

Dag hvern greinast þrír eða fjórir Íslendingar að jafnaði með krabbamein. Þetta er sjúkdómur sem snertir allar fjölskyldur landsins fyrr eða síðar með einhverjum hætti. Mikilvægt er að gera allt sem hægt er til að koma í veg fyrir sjúkdóminn, greina hann snemma og veita bestu fáanlegu meðferð. Eins er mikils virði að styðja sjúklinga og aðstandendur þeirra til að takast á við breyttar aðstæður.

Skoðun
Fréttamynd

Áfram stelpur og strákar

Íslenskar konur, til hamingju með kvennafrídaginn 2010. Í fjórða sinn boða íslenskar kvennahreyfingar til fjöldasamstöðu kvenna til að minna á launamisréttið sem enn ríkir í landinu og brýna landsmenn til baráttu gegn kynbundnu ofbeldi.

Skoðun
Fréttamynd

Alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt

Frá árinu 1987 hefur 17. október verið helgaður baráttu gegn fátækt á veraldarvísu. Dagurinn er þörf áminning og til þess fallinn að auka vitund fólks um orsakir og afleiðingar fátæktar. Fátækt er veruleiki fólks um allan heim, ekki aðeins meðal fátækra þjóða í fjarlægum löndum, heldu

Skoðun
Fréttamynd

Efnahagsstjórn, hagvöxtur og Vestfirðir

Það sem ráðherrann kallar "pólitíska stefnumótun“ ríkisstjórnarinnar, kalla ég stjórnleysi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, sem hefur kallað yfir okkur ójafnvægi og leitt til umræðunnar um stöðu íslensku krónunnar.

Skoðun